Árni hættir hjá Sjálfstæðisflokknum

Árni Helgason.
Árni Helgason.

Árni Helgason hefur ráðið sig til starfa hjá lögfræðistofunni JS-lögmenn og mun láta af störfum sem framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins nú um mánaðarmótin.

Árni er lögfræðingur að mennt og hefur starfað fyrir þingflokkinn í rúm tvö ár, eða frá því í júní 2007, að því er fram kemur á vef Sjálfstæðisflokksins. Ekki kemur fram hver tekur við starfi Árna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert