Tvær vefsíður uppfylltu skilyrði laga um sölu á raftækjum

Neytendur eiga rétt á ákveðnum upplýsingum þegar þeir versla á netinu, en misbrestur er á ... stækka

Neytendur eiga rétt á ákveðnum upplýsingum þegar þeir versla á netinu, en misbrestur er á því að að lögum þar að lútandi sé framfylgt. mbl.is/Golli

Tvær  íslenskar vefsíður uppfylltu skilyrði laga um sölu á raftækjum á Netinu, skv. könnun Evrópusambandsins sem gerð var víða í álfunni og Neytendastofa sá um að framkvæmda hér á landi. Þetta eru vefsíður Elko og Nýherja.  Alls tóku 26 aðildarríki ESB, auk Noregs og Íslands, þátt í athuguninni sem tók til 369 vefsíðna.

Neytendastofa tekur þátt í samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd og er einn þátturinn í samstarfinu samræmdar aðgerðir á ýmsum afmörkuðum sviðum viðskiptalífsins. Stjórnvöld í þeim ríkjum sem taka þátt í aðgerðunum kanna þá samtímis og með sama hætti í öllum ríkjunum hvort réttindi neytenda séu virt. Í kjölfarið kanna stjórnvöld nánar þau fyrirtæki sem mögulega brjóta gegn lögum og reglum og grípa til aðgerða ef um brot er að ræða.

Í maí var gerð athugun á vefsíðum sem bjóða til sölu raftæki ætluð neytendum, þ.e. stafrænar myndavélar, farsíma, tónlistarspilara, DVD spilara, tölvubúnað og leikjatölvur.

Kannað var hvort vefsíður væru í samræmi við neytendalög að því er varðar upplýsingar um seljanda, vöruna, þ.e. heildarverð og lýsing á vöru og réttindi neytenda.

 Niðurstöður aðgerðarinnar eru kynntar í dag af framkvæmdastjóra neytendamála hjá Evrópusambandinu, skv. upplýsingum frá Neytendastofu. Í ljós kemur að hjá 55% af þeim 369 vefsíðum voru upplýsingar ófullnægjandi. Algengustu misbrestirnir voru villandi upplýsingar um réttindi neytenda, villandi upplýsingar um heildarverð og ófullnægjandi eða engar upplýsingar um seljanda. 

Athugun Neytendastofu tók til tíu íslenskra vefsíðna þar sem raftæki eru á boðstólum. Kannað var hvort vefsíðurnar væru í samræmi við ákvæði laga um óréttmæta viðskiptahætti, laga um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu og laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga. Öll þessi lög byggja á sameiginlegum reglum Evrópska efnahagssvæðisins.

Tvær af þeim vefsíðum sem Neytendastofa kannaði uppfylltu skilyrði framangreindra laga varðandi sölu á raftækjum á Netinu en það voru vefsíður Elko, www.elko.is og Nýherja, www.netverslun.is.

Aðrar vefsíður sem Neytendastofa kannaði þarfnast nánari athugunar, en það eru bodeind.is, computer.is, ejs.is, fartolvur.is, siminn.is, start.is, tolvuvirkni.is og vodafone.is. 

Neytendastofa hefur haft samband við framangreinda aðila og óskað eftir nánari upplýsingum og skýringum og að lagfæringar verði gerðar á vefsíðum þar sem þess er þörf.

www.neytendastofa.is

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.

Ferry heillaði í Hörpu

00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
Í gær, 16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
Í gær, 16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

Í gær, 15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
Í gær, 15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

Í gær, 15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
Í gær, 15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
Í gær, 14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu kerrur
Til sölu þrjár kerrur, þar af ein lokuð farangurskerra. Smíðaðar úr ryðfríu stál...
Ford Focus, '99 árgerð til sölu
Tilboð óskast í Ford Focus, '99 árgerð, beinskiptur, 5 dyra, sparneytinn, ekinn ...
225-70-15C
óska eftir heilsárs dekkjum undir sendibíl að stærðinni 225-70-15C. Upplýsingar ...
Leiðiskrossar til sölu
Mjög fallegir leiðiskrossar til sölu galvanseraðir og pólýhúðaðir. Upplýsingar í...
 
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....