Umferðarslys á Hringbraut

Miklabraut er lokuð í vestur vegna umferðarslyss.
Miklabraut er lokuð í vestur vegna umferðarslyss. mbl.is/Jakob

Töluverðar tafir eru á Miklubraut og Hringbraut vegna umferðarslyss sem varð þar á áttunda tímanum í kvöld. Litlar upplýsingar er enn að fá frá lögreglu aðrar en að um bifhjól er að ræða. Einn maður var fluttur á slysadeild en ekki er vitað um alvarleika meiðsla hans.

Að sögn sjónarvotts virðist sem ökumaður bifhjólsins hafi misst stjórn á hjóli sínu og hafnað á ljósastaur. Lögregla hefur ekki getað staðfest það.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert