Inga Lind í nýjum fréttatíma

Inga Lind Karlsdóttir verður aðalþulur nýja fréttatímans.
Inga Lind Karlsdóttir verður aðalþulur nýja fréttatímans. mbl.is/Dagur

Sjónvarpskonan Inga Lind Karlsdóttir hefur verið ráðin fréttaþulur í nýjum sjónvarpsfréttatíma SkjásEins og Morgunblaðsins. Inga Lind verður aðalþulur fréttanna. „Þetta leggst vel í mig, það er gaman að taka þátt í nýjum verkefnum," sagði Inga Lind í samtali við mbl.is.

 „Þegar fólk fer af stað með nýja og góða hlut þá finnst mér það einstakt tækifæri að fá að vera með," sagði Inga Lind og bætti því við að hún vildi nota þetta tækifæri og þakka það traust sem henni er sýnt.

„Það er mikill heiður að fá jafn farsæla og reynda sjónvarpskonu með okkur í þetta mikilvæga verkefni,“ sagði Sigríður Margrét Oddsdóttir, sjónvarpsstjóri Skjásins.

Inga Lind verður aðalþulur fréttanna en þessa dagana er unnið er hörðum höndum að undirbúningi á nýja fréttatímanum og stefnt er að því að útsendingar hefjist í mánuðinum.  Fréttir verða sýndar alla virka daga kl. 18:50 og endursýndar kl. 21:50.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka