Anna á Hesteyri látin

Anna Marta Guðmundsdóttir á Hesteyri,
Anna Marta Guðmundsdóttir á Hesteyri, Mynd Austurglugginn

Anna Marta Guðmundsdóttir, bóndi á Hesteyri í Mjóafirði, lést í fyrrinótt á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað. Hún hefði orðið áttræð 29. september næstkomandi.

Vefur Austurgluggans greinir frá því að útför Önnu verði gerð frá Mjóafirði á sunnudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert