Trampólín fauk á bíl og skemmdi hann

Hoppað á trampólíni á Austurvelli.
Hoppað á trampólíni á Austurvelli. mbl.is/Ómar

Tvö trampólín hófust á loft á Akureyri í dag. Annað fauk á bíl á bílastæði við fjölbýlishús og brotnaði framrúða bílsins auk þess sem þak bílsins og vélarhús beyglaðist, að sögn lögreglunnar.

Hitt trampólínið fauk úr húsagarði út á gangstétt við fjölfarna götu. Segir lögreglan það mildi að ekki hafi orðið óhapp.

Að sögn lögreglunnar á Akureyri hefur ekki verið mjög hvasst í bænum í dag, heldur hafi komið smárokur. Lögreglan hvetur eigendur trampólína til þess að huga að þeim nú þegar haustlægðirnar fara að koma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert