Steingrímur nýtur mest trausts

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. stækka

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Ómar Óskarsson

Flestir, eða 37,7%, sögðust bera mikið traust til Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra í nýrri könnun MMR á trausti almennings til forystufólks í stjórnmálum. Hefur traust almennings á Steingrími sjaldan mælst jafn mikið og nú. Næst flestir, eða 36% sögðust bera mikið traust til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Þetta er nokkur breyting frá í febrúar síðast liðnum þegar 58,5% kváðust bera mikið traust til Jóhönnu. Um 40% svarenda segjast bera lítið traust til þeirra Steingríms og Jóhönnu.

„Um leið hafa orðið þau tímamót í mælingum MMR á trausti til helstu leiðtoga stjórnmálanna, að forsetanum meðtöldum, að fleiri segjast bera lítið traust til þeirra allra en segjast bera mikið traust til þeirra.

Ólafur Ragnar Grímsson nýtur mikils trausts hjá 22,9% svarenda, en tæp 47,7% segjast bera lítið traust til forsetans. 19,4% sögðust bera mikið traust Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins og 18,3% sögðust bera mikið traust til Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Á móti voru yfir 50% sem sögðust bera lítið traust til þeirra Sigmundar og Bjarna.

Birgitta Jónsdóttir, formaður þingflokks Borgarahreyfingarinnar var sögð njóta mikils trausts af 7,4% svarenda en 63,0% kváðust bera litið traust til hennar," að því er segir í tilkynningu.

Steingrímur J. Sigfússon nýtur trausts meðal 93,2% þeirra sem segjast myndu kjósa Vinstri græna væri gengið til kosninga nú, Jóhanna Sigurðardóttir nýtur trausts meðal 82,9% stuðningsmanna Samfylkingarinnar, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson nýtur trausts meðal 67,1% Framsóknarmanna og Bjarni Benediktsson nýtur trausts meðal 60,1% sjálfstæðismanna.

Nánari upplýsingar um könnunina

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.

„Ég er í skýjunum“

Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjón-keppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »
Jónsi og Greta Salóme.

„Mjög sérstök tilfinning“

Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka

Geir H. Haarde fyrir Landsdómi.
Í gær, 19:52 Jafnmargir eru því fylgjandi að ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði dregin til baka og andvígir því, samkvæmt niðurstöðum úr könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins sem greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. Meira »

Hvessir af suðri seint í kvöld

Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt.
Í gær, 17:16 Heldur hvessir af suðri í kvöld og hlýnar á landinu, samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt, en slyddu og rigningu í byggð. Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð byljóttum vindi í nótt og mjög hvössum vindhviðum. Meira »

Úrslitakeppnin hafin í Hörpu

Keppnin fer fram í Hörpu.
Í gær, 20:33 Úrslitakvöld forkeppni Evróvisjón er hafið í Hörpu, en í kvöld kemur í ljós hverjir keppa fyrir hönd Íslands í lokakeppni söngvakeppninnar sem fram fer í Bakú í Aserbaídjan síðar á árinu. Meira »

Fjör á 112-deginum á Húsavík

Börnum og unglingum var boðið í stutta sjóferð á Jóni Kjartanssyni, báti Björgunarsveitarinnar Garðars.
Í gær, 17:35 Víðar var haldið upp á 112-daginn en aðeins í Reykjavík. Þannig lögðu fjölmargir leið sína í björgunarsveitarhúsið Naust á Húsavík þar sem viðamikil dagskrá fór fram. Meira »

Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti

Ögmundur Jónasson
Í gær, 16:46 Ögmundur Jónasson, innanríkis- og mannréttindaráðherra Íslands, segir það vel koma til greina að skoða með hvað hætti Ísland geti beint spjótum sínum að mannréttindabrotum í Aserbaídsjan í kjölfar Evróvisjón keppninnar. Meira »

Ekki hika – hringdu til öryggis

Meðal þess sem var í boði, var að læra hvernig á að beita hjartahnoði.
Í gær, 16:46 Gagn og gaman, voru þau orð sem gestir í Smáralind höfðu um 112-daginn sem þar var haldinn í dag. Markmið dagsins var að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. En ekki síður voru viðbragðsaðilar með umfangsmiklar kynningu. Meira »

Enginn flótti af Y-lista

Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrú Y-lista Kópavogsbúa og Ármann Kr. Ólafsson, sjálfstæðisflokki.
Í gær, 16:04 Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Y-lista í bæjarstjórn Kópavogs, segir það ekki rétt að nokkur fjöldi hafi sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að listinn myndaði meirihluta með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi á fimmtudaginn. Henni er aðeins kunnugt um að einn hafi sagt sig af listanum vegna þessa. Meira »

Möguleikar nýju framboðanna

Í gær, 16:05 Væntanlega mun ýmislegt skýrast á næstunni frekar varðandi stefnur stjórnmálahreyfinganna og hvernig þær ætli sér að skipuleggja starfsemi sína fyrir næstu þingkosningar sem verða í síðasta lagi vorið 2013 eða eftir rúmt ár en gætu skollið á hvenær sem er. Meira »

Iðnaðarmaður ræsti brunaboða

Kleppsspítali
Í gær, 15:57 Lögregla og slökkvilið voru kölluð að Kleppsspítala rétt fyrir hádegið í dag þegar brunaboði og innbrotsboði voru ræstir. Í ljós kom að iðnaðarmaður setti brunaboðann af stað með vinnu sinni og þegar hann reyndi að slökkva á honum ræsti hann óvart innbrotsboðann. Meira »

Búðaþjófur ógnaði starfsmanni

Maðurinn reyndi að stela vörum úr Hagkaup.
Í gær, 15:54 Starfsfólk Hagkaupa í Skeifunni óskaði eftir aðstoð lögreglu höfuðborgarsvæðisins á öðrum tímanum í dag. Þar hafði karlmaður reynt að stela vörum og brást illa við afskiptum öryggisvarðar. Búðaþjófurinn sem ógnaði öryggisverðinum með skærum var handtekinn og bíður skýrslutöku. Meira »

Fangar reyna oft að ná í fíkniefni

Fangi fluttur fyrir dómara.
Í gær, 15:39 Tilvik þess að fangar reyni að nálgast fíkniefni þegar verið er að flytja þá á spítala, fyrir dóm eða til tannlæknis koma reglulega upp. Þetta sagði deildarstjóri á fangelsinu á Litla-Hrauni í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Því þurfi sífellt að endurskoða fangaflutninga. Meira »

Skjálftahrina við Grímsey

Kort af skjálftunum.
Í gær, 14:48 Jarðskjálftahrina varð úti fyrir Grímsey í morgun. Á vefsvæði Veðurstofu Íslands má sjá að hrinan hófst um klukkan níu í morgun og stóð til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 2,3 stig, en einnig mældust skjálftar up á 2 stig og 1,9 og 1,7. Engir skjálftar hafa mælst eftir hádegið. Meira »

Börn grétu vegna útigangsmanna

Klambratún.
Í gær, 15:48 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að Klambratúni í dag þar sem útigangsmenn voru með ofstopa og ógnuðu fólki sem þar gekk um. Tilkynnandi sagði að börn hefðu orðið mjög skelfd og brostið í grát vegna þessa. Þegar lögregla kom á vettvang voru mennirnir hins vegar horfnir á braut. Meira »

Slökkt á meðan Kolaportið er opið

Kolaportið
Í gær, 15:26 Tollstjóri hyggst slökkva á eftirlitsmyndavélum á húsi embættisins við Tryggvagötu á meðan Kolaportið er opið. Þetta kemur fram í umsögn Persónuverndar um fyrirhugaða vöktun hússins. Meira »

Öskureið út í Pál Óskar

Í gær, 14:41 Ulker Gasanova sem fluttist til Íslands frá Aserbaídsjan árið 2001 með móður sinni, Sevil Gasanova, er ekki sátt við málflutning Páls Óskars vegna undirbúnings Evróvisjónkeppninar sem fer fram í Aserbaídsjan í ár. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD ÁRG. 3/2003 EKINN. 175 Þ.KM. SJÁLFSKIPTUR. HEIL...
TILBOÐ TILBOÐ
TILBOÐ TILBOÐ Stakar stærðir AÐEINS KR. 2.500 Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið...
Nissan Almera Comfort árg. 2000
Einn ódýr Nissan Almera Comfort árg. 2000. Verð 280.000 Upplýsingar Hafst...
Toyota LC120 VX 10/05 ek.125 þús
Átta manna, 35" breyttur ný dekk , dráttarkúla , sóllúga og fl. Dekurbíll einn e...
 
Stúkan hlín
Félagsstarf
jHlín 6012020719 VI ...
Order nr. 003077 -ilo
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
L edda 6012021118 skv.
Félagsstarf
l EDDA 6012021118 Skv....
Reykjavíkurborg deiliskipulag

Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingar...