Stöðvuðu kannabisræktun

Kannabisplöntur. Mynd úr safni.
Kannabisplöntur. Mynd úr safni.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi á Kjalarnesi um miðjan dag í gær. Við húsleit fundust um 50 kannabisplöntur. Einnig var lagt hald á gróðurhúsalampa og fleiri hluti sem tengjast starfseminni.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu aðgerðin sé liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál.

Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Þá fundust fíkniefni við húsleit í íbúð í Kópavogi síðdegis í gær. Um var að ræða kannabis og kannabisfræ. Innandyra voru tveir karlar og tvær konur, en fólkið hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert