Ólafur kvaddi starfsmenn Morgunblaðsins
Ólafur Þ. Stephensen kvaddi starfsmenn Morgunblaðsins á starfsmannafundi síðdegis en fyrr í dag varð að samkomulagi hans og eigenda Árvakurs hf. að hann léti af störfum sem ritstjóri Morgunblaðsins. Fram kom að það væri vegna mismunandi áherslna varðandi ritstjórn og rekstur blaðsins.
Ólafur sagði, þegar hann ávarpaði starfsmenn, að hann ætlaði ekki að halda því fram að þessi niðurstaða væri sér að skapi. En hann og Óskar Magnússon, útgefandi Morgunblaðsins, hefðu átt um þessi efni hreinskiptin og heiðarleg samskipti allan tímann og vitað hvar þeir höfðu hvor annan.
„Það er mikið um það rætt hvernig eigendur fjölmiðla beiti valdi sínu. Ég tel að þeir eigi að gera það með þeim hætti, sem eigendur Árvakurs hafa gert. Þeir ráða ritstjórann og þeir geta látið hann fara. Það eru hreinlegri stjórnarhættir en að eigendurnir hafi afskipti af daglegum rekstri ritstjórnarinnar," sagði Ólafur.
Ólafur tók við ritstjórn Morgunblaðsins í júní á síðasta ári. Hann sagðist vera stoltur af þeim árangri, sem blaðið hefði náð við erfiðar aðstæður í samfélaginu og á fjömmiðlamarkaðnum.
„Ég er stoltur af því hvernig ritstjórn Morgunblaðsins hefur staðið sig undanfarið ár, eftir að íslenskt samfélag fór á annan endann í bankahruninu. Ég tel að við höfum staðið okkar plikt sem óháður og gagnrýninn fjölmiðill, veitt almenningi þær bestu upplýsingar sem við gátum og sýnt bæði stjórnvöldum og viðskiptalífinu strangt aðhald. Við höfum engum hlíft í þeirri umfjöllun okkar, ekki einstökum stjórnmálaöflum eða valdamönnum, ekki einstökum fyrirtækjum eða samsteypum, ekki vinum okkar, ekki einu sinni eigendum okkar á hverjum tíma. Þannig á sjálfstæð ritstjórn að starfa," sagði Ólafur.
Hann sagðist síðan vera sannfærður um að Árvakur, Morgunblaðið, mbl.is og hvaða aðrir miðlar, sem kunni að verða stofnaðir á vegum þessa fyrirtækis, eigi sér bjarta framtíð vegna þess að þar starfi þrautþjálfað fólk, sem sé í stakk búið til að takast á við hvaða verkefni sem er og hvaða samkeppni sem er.
Bloggað um fréttina
-
Friðrik Hansen Guðmundsson Bara tímaspursmál hvenær ritstjórinn yrði látinn fara -
Jakob Falur Kristinsson Morgunblaðið -
Hallur Magnússon #9541 Ólafur Stephensen var góður ritstjóri Morgunblaðsins -
Auður Matthíasdóttir Fljótt, fljótt er farinn ágætur maður -
Sigurbjörg Eiríksdóttir Uppsögn. -
Axel Jóhann Hallgrímsson Verður Mogginn aftur skítlegt flokksblað?
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 18. september 2009, Innlent Ólafur lætur af starfi ritstjóra
- Miðvikudagur, 24. febrúar 2010, Innlent Ólafur Þ. Stephensen nýr ritstjóri Fréttablaðsins
- Mánudagur, 21. september 2009, Innlent Ekki búið að ráða nýjan ritstjóra
- Fimmtudagur, 24. september 2009, Innlent Davíð og Haraldur ritstjórar
- Mánudagur, 26. janúar 2009, Innlent Laun lækka um 5% hjá Árvakri
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































