Slagsmál á Húsavík

Lögreglan á Húsavík hafði í nógu að snúast í nótt. Slagsmál blossuðu upp í tengslum við dansleik á öldurhúsi þar í bæ. Einnig var ráðist á pilt, sem staddur var í húsinu og brotnuðu  tennur í honum.

Má búast við þremur líkamsárásarkærum í kjölfarið en einn gisti fangageymslur lögreglunnar.

Rólegt var hjá lögreglu annars staðar á Norðurlandinu í nótt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert