59% óku of hratt um Norðurfell

mbl.is/Júlíus

Brot 54 ökumanna voru mynduð í Norðurfelli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurfell í austurátt, við Gyðufell. Á einni klukkustund, í hádeginu,  fóru 92 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tíu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56 km hraða, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
 
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert