Þorsteinn stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins

Þorsteinn Þorsteinsson.
Þorsteinn Þorsteinsson.

Fjármálaráðherra hefur skipað í stjórn Bankasýslu ríkisins og hefur hún formlega tekið til starfa. Stjórnina skipa  Þorsteinn Þorsteinsson, rekstrarhagfræðingur, stjórnarformaður, Sonja María Hreiðarsdóttir, lögmaður, varaformaður, Sigurður B. Stefánsson, hagfræðingur og Guðrún Johnsen, hagfræðingur, til vara.

Bankasýslu ríkisins er ætlað að fara með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum, í samræmi við lög, góða stjórnsýslu- og viðskiptahætti og eigendastefnu ríkisins á hverjum tíma, og leggur þeim til fé fyrir hönd ríkisins á grundvelli heimilda í fjárlögum. Bankasýslan skal hafa lokið störfum eigi síðar en 5 árum eftir að hún er sett á fót.

Bankasýsla ríkisins á að leggja áherslu á endurreisn og uppbyggingu öflugs innlends fjármálamarkaðar og stuðla að virkri og eðlilegri samkeppni á þeim markaði, tryggja gagnsæi í allri ákvarðanatöku varðandi þátttöku ríkisins í fjármálastarfsemi og tryggja virka upplýsingamiðlun til almennings.

Meðal fyrstu verkefna stjórnarinnar verður að auglýsa starf forstjóra Bankasýslu ríkisins laust til umsóknar og að skipa í valnefnd sem ætlað er að velja fulltrúa í stjórn fjármálafyrirtækja sem stofnunin fer með eignarhald á.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert