Þrjú innbrot í höfuðborginni

mbl.is/Július

Þrjú innbrot voru framin í nótt á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.  Um var að ræða fyrirtæki við Suðurlandsbraut,  Bíldshöfða og Flugvallaveg. Í öllum þremur tilvikum gerðu starfsmenn öryggisfyrirtækis lögreglu viðvart. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er verið að rannsaka málið og því enn ekki ljóst  hverju var stolið í þessum innbrotum en eigendur þessara fyrirtækja munu fara yfir það í dag hverju var stolið nákvæmlega. 

Engin hefur verið handtekinn vegna málsins. Ekki fengust upplýsingar um það hvort í fyrirtækjunum þremur hefðu verið öryggiseftirlitsmyndavélar. 


Að öðru leyti var mjög rólegt á höfuðborgarsvæðinu í nótt sem leið.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert