Beðið eftir fjárfestingarsamningi

Athafnasvæði Verne Global á gamla varnarsvæðinu, 1. áfangi í stóru byggingunni til vinstri og sá ... stækka

Athafnasvæði Verne Global á gamla varnarsvæðinu, 1. áfangi í stóru byggingunni til vinstri og sá 2. til hægri. mbl.is

Framkvæmdir við 1. áfanga gagnavers Verne Global á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli eru komnar á fullt skrið. Alls starfa þar nú hátt í 100 manns á vegum Íslenskra aðalverktaka og undirverktaka þeirra. 

 Meðal þess sem eftir er að ganga frá er fjárfestingarsamningur við stjórnvöld en ágreiningur um skattaleg atriði hefur tafið afgreiðslu málsins. Orkuöflun var tryggð fyrir 1. áfanga og ekki háð raforku um Suðvesturlínu, en úrskurður umhverfisráðherra í dag um Suðvesturlínuna gæti mögulega haft áhrif á áform Verne Global með 2. áfanga, sem á þessu stigi er óákveðið hvenær ráðist verður í.

Orkuþörf fyrir 1. áfanga er um 20MW en áform eigenda Verne Global ganga út að byggja gagnaverið upp í fjórum áföngum. Áhersla verður lögð á að reisa fyrstu tvo áfangana á næstu árum, að því er fram kom á blaðamannafundi með forsvarsmönnum Verne Global á varnarsvæðinu í dag. Ef allt gengur eftir gæti fyrsti áfangi verið kominn í gagnið um mitt næsta ár.

Gagnaverið í fjórum áföngum þarf allt að 150MW orku. Hver áfangi er plássfrekur en fyrstu tveir þurfa hvor um sig um 48 þúsund fermetra húsnæði. Búist er við að hjá Verne Global muni starfa 25-30 manns og síðan enn fleiri hjá þeim fyrirtækjum sem munu leigja aðstöðu undir gagnaver.

Embættismenn á vegum fjármálaráðuneytisins hafa að undanförnu átt í viðræðum við forráðamenn Verne Global og þess fyrirtækis sem vill hýsa tölvugögn sín hér á landi. Ágreiningur hefur verið um skattaleg atriði, m.a. varanlega starfsstöð eða heimilisfesti fyrirtækjanna sem semja við Verne Global um hýsingu í gagnaverinu, samkvæmt upplýsingum blaðsins. Vilja stjórnvöld m.a. að viðskiptavinirnir stofni lögheimili hér á landi og greiði hér skatta og skyldur, á móti einhvers konar ívilnunum fyrir að fjárfesta hér á landi. Fjárfestingarsamningur af þessu tagi er sem fyrr háður samþykkir Alþingis og Eftirlitsstofnunar EFTA.

Jeff Monroe, forstjóri Verne Global, sagðist á fundi með blaðamönnum í dag vona að vinnu við fjárfestingarsamning lyki á næstu dögum. Fyrirtækið hefði átt gott samstarf við íslensk stjórnvöld, orkufyrirtæki og heimamenn á Suðurnesjum. Auk Reykjanesbæjar nefndi hann Landsvirkjun, Hitaveitu Suðurnesja, Landsnet og Farica. Monroe upplýsti ekki um nákvæmar upphæðir við fjárfestinguna en hún hlypi á hundruðum milljóna dollara. Lætur nærri að fjárfestingin sé í kringum 300-400 milljónir dollara, eða allt að 50 milljarðar króna.

Fleiri fjárfestar að koma inn

Verne Global er í eigu nokkurra erlendra og innlendra fjárfesta en meðal þeirra stærstu eru bandaríski fjárfestingasjóðurinn General Catalyst og Novotor, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar. Fram á fundinum í dag að von væri að fleiri fjárfestum inn í fyrirtækið, og að fjármögnun fyrir fyrsta áfangann væri í höfn.

Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, var viðstaddur blaðamannafundinn. Hann sagði gagnaver Verne Global ekki aðeins hafa mikil áhrif á nærsamfélagið á Suðurnesjum heldur þjóðarbúið allt. „Hér er komið tækifæri til að nýta í kreppunni, mikilvægt verkefni sem komið er á fulla ferð og styðst við mikla tækniþekkingu og græna endurnýjanlega orku," sagði Árni m.a.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Hugmyndir að Svínavatnsleið.

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
RENAULT MEGANE SPORT TOURER
Renault Megane Sport Tourer Nýskr. 3/2004, ekinn 122 þ. km, bens...
Toyota Corolla1,4 VVTi,8/2003
Til sölu Toyota Corolla 1,4 VVTi, 8/2003. Ek. 100 þús., bensín, nýskoðaður, ný ...
Sumarhúsalóðir í Vaðnesi
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir í kjarrivöxnu landi Vaðness í Grímsnes- og Gra...
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01 4 stk. Verð 15.000kr. Uppl. í sím...
 
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Samtök atvinnulífsins
Önnur störf
LÖGFRÆÐINGUR Samtök atvinnulífsins lei...
Bl atvinnuaugl
Önnur störf
HYUNDAI FLYTUR Í NÝJA OG GLÆSILEGA FRAMT...
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...