Ríkisráðsfundur á Bessastöðum

Frá ríkisráðsfundi í morgun
Frá ríkisráðsfundi í morgun mbl.is/Ómar

Ríkisráðsfundur stendur nú yfir á Bessastöðum en á þeim fundi mun Ögmundur Jónasson formlega láta af embætti heilbrigðisráðherra og Álfheiður Ingadóttir taka við embætti heilbrigðisráðherra. En eins og fram hefur komið tilkynnti Ögmundur forsætisráðherra um afsögn sína í gær.  Síðar í dag verður Alþingi sett.

Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu kl. 13:25. Jón A. Baldvinsson, vígslubiskup í Hólabiskupsdæmi, predikar og séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni. Organisti Dómkirkjunnar, Marteinn H. Friðriksson, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

Forseti Íslands setur Alþingi, 138. löggjafarþing, og að því loknu flytur forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, ávarp. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 4 síðdegis.

Álfheiður Ingadóttir mætir á Bessastaði
Álfheiður Ingadóttir mætir á Bessastaði mbl.is/Ómar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert