Lögðu hald á 125 plöntur

Lögreglan fann margar kannabisplöntur í dag.
Lögreglan fann margar kannabisplöntur í dag. Kristinn Ingvarsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í miðborginni fyrir hádegi í dag. Við húsleit á staðnum fundust 125 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar og um 400 grömm af marijúana. Í sama hús fannst einnig mjög mikið af kannabisfræjum.

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins og játaði hann aðild sína en fíkniefnin voru ætluð til sölu.

Þessar aðgerð eru liður í aðgerðum lögreglu til að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert