Lögmaður Færeyja í heimsókn

Kaj Leo Johannesen,
Kaj Leo Johannesen,

Kaj Leo Holm Johannesen, lögmaður Færeyja, kemur í opinbera heimsókn til Íslands dagana 12. – 14. október nk. og á hann m.a. fund með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra heldur lögmanni kvöldverðarboð og hann heimsækir Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands.

Lögmaðurinn skoðar Landnámssýninguna í Reykjavík, Þingvelli, Geysi, Gullfoss og Skálholt, auk þess sem hann kynnir sér fiskvinnslu hjá HB Granda og nýtingu jarðvarma í Nesjavallavirkjun. Þá heimsækir hann Alþingi og Háskóla Íslands, þar sem hann flytur ávarp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert