1.500 Íslendingar boðaðir til „þjóðfundar“

1.500 Íslendingar af handahófi verða boðaðir til fundarins

1.500 Íslendingar af handahófi verða boðaðir til fundarins mbl.is

1.500 boðsbréf verða í dag send út vegna þjóðfundar, sem boðaður hefur verið á höfuðborgarsvæðinu 14. nóvember næstkomandi. Til fundarins er boðið 1.200 Íslendingum 18 ára og eldri, sem valdir eru af handahófi úr þjóðskrá. Auk þeirra er 300 fulltrúum stofnana og samtaka á Íslandi boðið að sitja fundinn. 

Að undirbúningi fundarins stendur hópur sem kallar sig Mauraþúfuna, en nafngiftin vísar að sögn talsmanna hópsins til þess að í sameiningu er hægt að færa til hlöss, sem hver og einn ræður ekki við.

Tilgangur fundarins er að „hefja þjóðfélagsumræðuna upp yfir dægurþras og deilur um einstök verkefni og beina sjónum að framtíðarsýn, byggðri á sameiginlegu gildismati þjóðarinnar. Markmið þjóðfundarins er að virkja visku fjöldans og gera hana aðgengilega fyrir alla, sem hafa hug á að leggja sitt af mörkum til endurreisnar íslensks samfélags og efnahagslífs.“

Í tilkynningu vegna fundarins segir að skoðanakannanafyrirtæki hringi daglega í slembiúrtök úr þjóðskrá og spyrji fólk út í sjónarmið þess og skoðanir. Hinsvegar hafi marktækt úrtæk heillar þjóðar aldrei áður verið boðað á fund á einum stað til að tala saman. Á fundinum verður að sögn talsmanna unnið eftir sérstakri aðferðafræði, sem miðar að því að tryggja að allir þátttakendur komist að í umræðunni og sjónarmið allra heyrist. Unnið verður allan daginn í níu manna hópum og öflug bakvinnsla sér um að taka saman niðurstöður og hugmyndir, sem kvikna á fundinum.

Að hópnum Mauraþúfunni stendur fólk með fjölbreyttar skoðanir og bakgrunn, sem samkvæmt tilkynningu hefur „fyrst og fremst brennandi áhuga á að bæta samfélagið og varða leiðina til bjartrar framtíðar Íslands. Allt starf hópsins er unnið í sjálfboðavinnu og fundurinn er fjármagnaður með framlögum og styrkjum stofnana, fyrirtækja og einstaklinga. Fundurinn og niðurstöður hans verða eign þjóðarinnar; allir eiga að geta nýtt sér þær en enginn einn eða fáir að geta eignað sér þær.“

Þátttakendur, sem fá boðsbréf inn um lúguna hjá sér á næstu dögum, eru beðnir að staðfesta komu sína á fundinn á www.thjodfundur2009.is eða í síma 856 9331, 856 9332 eða 856 9333.  Haft verður samband við þá sem ekki hafa skráð sig fyrir 17 október. Þeir, sem koma langt að, munu fá ferðastyrki og þeir, sem ekki eiga kost á gistingu hjá ættingjum eða vinum í höfuðborginni, geta nýtt sér tilboð á gistiheimilum eða þegið heimagistingu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.

Ferry heillaði í Hörpu

00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
Í gær, 16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
Í gær, 16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

Í gær, 15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
Í gær, 15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

Í gær, 15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
Í gær, 15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
Í gær, 14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Snyrti og nuddbekkir
Glæsilegur snyrti og nuddbekkur fáanlegur í 3 litum. 185*60-81cm. Það sem á mynd...
Mitsubishi Galant (ES
Mitsubishi Galant (ES) 2001 árgerð Ekinn ca 11000 mílur (176þús km) Slagrými ...
58 fermetrar
Til leigu húsnæði á annari hæð í Dugguvogi 6 (Fossberg) Eitt rými með litlum el...
PLASTMÓDEL
Plastmódel í miklu úrvali. Tómstundahúsið...
 
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...