Kipptu að sér höndum

Loftmynd af álverinu í Straumsvík stækka

Loftmynd af álverinu í Straumsvík

Morgunblaðið eftir Ómar Friðriksson

RIO Tinto Alcan samþykkti í lok september að fjármagna fyrsta áfanga stækkunarinnar í Straumsvík, eða um einn þriðja hluta verkefnisins, upp á alls 13 milljarða kr.

Daginn eftir birtist hugmyndin um orku- og kolefnisskatta í fjárlagafrumvarpi fjármálaráðherra. Þá ákváðu eigendur álversins að halda að sér höndunum og hafast ekkert frekar að.

Skattahugmyndirnar setja stækkunina í Straumsvík í óvissu þar til í ljós kemur hvort stjórnvöld ætla að halda skattheimtunni til streitu. Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi álversins staðfesti þetta í samtali við blaðið. Að sögn hans voru menn tilbúnir að hefja framkvæmdir við stækkunina um næstu mánaðamót.

Aukin óvissa um framkvæmdir sem rætt er um í Karphúsinu

Þetta mál og fleiri hafa komið upp í vinnu starfshóps aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda í Karphúsinu á seinustu dögum. Þar vinna menn að því að draga saman tiltækar upplýsingar um stöðu einstakra stórframkvæmda sem kveðið er á um í Stöðugleikasáttmálanum.

Ákvörðun umhverfisráðherra um að láta Skipulagsstofnun að nýju taka ákvörðun um sameiginlegt umhverfismat Suðvesturlína veldur einnig óvissu og hefur keðjuverkandi áhrif á áformaðar framkvæmdir í virkjunum og stóriðju, s.s. í Helguvík.

Hún getur einnig haft áhrif á fyrirhugað gagnaver Verne Holding því þó núverandi kerfi eigi að tryggja orku vegna fyrsta áfangans, þá fullnægir það ekki ítrustu kröfum sem gerðar eru um tvöfalt afhendingaröryggi orku.

Í Karphúsinu hefur komið fram að tafir á framkvæmdáformum vegna umhverfismatsins verði aldrei minni en 4 mánuðir og jafnvel þó ráðherra félli frá sameiginlega umhverfismatinu megi telja fullvíst að fram kæmu kærur, sem tekur sinn tíma að meðhöndla.

Auglýsa þarf kærufresti og kalla eftir gögnum frá öllum sem málið varðar. „Þetta gæti því dregist í einhver misseri og mögulega ár,“ segir viðmælandi.

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, rekur ítarlega hvaða atriði standa enn útaf í stöðugleikasáttmálanum í leiðara fréttabréfs SA í gær.

„Það þarf að greiða götu stórfjárfestinga í atvinnulífinu og þ.m.t. í orkuframleiðslu, verkefna sem ýmist eru í gangi eða gætu verið að fara af stað. Þarna hafa stjórnvöld beinlínis verið að leggja steina í götu verkefna með áformum um orku- og kolefnisskatta og með ákvörðun umhverfisráðherra að afturkalla úrskurð Skipulagsstofnunar vegna Suðvesturlínu. Snúa þarf hvoru tveggja við og standa við það loforð að greiða götu þessarra fjárfestinga. Ekki blæs byrlega í þeim málum,“ segir Vilhjálmur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »
F-18 Hornet orrustuþota.

Fjórar finnskar þotur til Íslands

16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hjólhýsi til sölu
TEC 690 hjólhýsi til sölu árgerð 2005, næsta skoðun 2013. Auka rafgeymir - eldav...
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD ÁRG. 3/2003 EKINN. 175 Þ.KM. SJÁLFSKIPTUR. HEIL...
Lítill ljósabekkur
Til sölu þessi krúttlegi ljósabekkur Orginal philips uva. 8 perur. Upplýsingar í...
Hermannaskyrta
Hermannaskyrta til sölu. Upplýsingar í síma: 8935005...
 
Aðstoðarskólastjóri
Leikskólakennsla
Aðstoðarskólastj...
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...