Risi í heimsókn

Sultan Kösen ræddi við íslenskt fjölmiðlafólk í dag.
Sultan Kösen ræddi við íslenskt fjölmiðlafólk í dag. mbl.is/Golli

Hæsti maður heims, Tyrkinn Sultan Kösen, ræddi við íslenska fjölmiðla í dag. Kösen kom til landsins í gær, en hann ferðast nú um heiminn og er að kynna nýjustu útgáfu Heimsmetabókar Guinness.

Kösen, sem er hvorki meira né minna en 2,465 metrar á hæð, sagði nýverið að hann væri í konuleit, enda tilbúinn í hjónaband.

Á morgun mun hann árita Heimsmetabók Guinness í Smáralind.

Verslunin G.Á. húsgögn var fengin til þess að hanna og smíða stól handa Tyrkjanum og var fyrirvarinn lítill, aðeins tveir dagar gefnir til verksins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert