Forsetinn birtir bréf

Bessastaðir.
Bessastaðir. mbl.is/Ómar

Átta af þeim sautján bréfum forseta Íslands sem Rannsóknarnefnd Alþingis fékk frá forsetaembættinu hafa verið birt á heimasíðu embættisins. Eru þetta bréf forsetans til manna sem látið hafa af embætti auk tveggja annarra.

Hefur þetta verið ákveðið til þess að koma til móts við óskir og umræðu í samfélaginu. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu sem forsetaembættið hefur sent frá sér.

Hin bréfin níu eru öll til þjóðhöfðingja eða æðstu forsvarsmanna ríkja sem enn eru í embætti og væri birting þeirra fáeinum misserum eða árum eftir að þau eru send stefnubreyting í samskiptum landsins við önnur ríki og bryti í bága við siðareglur samskipta milli ríkja.

Í þeim ríkjum sem Ísland hefur helst samstarf við eru lög og reglur sem annað hvort hindra eða takmarka birtingu slíkra gagna fyrr en eftir langt árabil.

Segir í tilkynningunni að ef bréf forseta Íslands til þjóðhöfðingja og annarra æðstu forráðamanna ríkja sem enn eru í viðkomandi embættum  yrðu birt, gæti það orðið stefnumótandi fyrir íslenska stjórnkerfið í heild, bæði ráðherra, ráðuneyti og aðrar æðstu stofnanir ríkisins. Forseti telur að hann geti ekki einn og sér tekið ákvörðun um slíka stefnubreytingu. Hún yrði að vera niðurstaða af breiðu samkomulagi íslenskra stjórnvalda enda hefði hún víðtæk áhrif á samskipti Íslands við önnur ríki um langa framtíð.

Bréfin sem nú eru birt á heimasíðu forsetaembættisins, forseti.is, eru:

1. Bréf til Jiang Zemin fyrrum forseta Kína um samstarf Íslands og Kína og boð um heimsókn til Íslands.

2. Bréf til fyrrum kjörræðismanns Íslands í Pétursborg, Björgólfs Thors Björgólfssonar, með þökkum fyrir framlag ræðisskrifstofunnar til opinberrar heimsóknar forseta til Rússlands.

3. Bréf til Lisa Murkowski öldungadeildarþingmanns í Bandaríkjunum um samstarf Íslands við Alaska.

4. Bréf til Bill Clinton fyrrum forseta Bandaríkjanna um ýmis samstarfsverkefni í framhaldi af viðræðum á Bessastöðum.

5. Bréf til Al Gore fyrrum varaforseta Bandaríkjanna um orkumál, loftslagsbreytingar og heimsókn til Íslands.

6. Bréf til Shri Palaniappan Chidambaram fyrrum fjármálaráðherra Indlands í tilefni af heimsókn hans til Íslands í boði Árna Mathiesens fjármálaráðherra.

7. Bréf til Mani Shankar Ayiar fyrrum ráðherra íþrótta- og æskulýðsmála á Indlandi með þökkum fyrir kvöldstund á heimili hans.

8. Bréf til Leon Black forstjóra Apollo vegna óska hans um samstarf við banka og fjárfestingarfyrirtæki sem vilji sérhæfa sig í nýtingu jarðhita og orkuvinnslu í Bandaríkjunum.

Í fréttatilkynningunni er ennfremur ítrekað að forsetaskrifstofan skilgreindi ósk Rannsóknarnefndarinnar eins víðtækt og frekast var unnt en þó fundust aðeins þrettán bréf í bréfasafni forsetaembættisins á árabilinu 2000-2008 þar sem banka var getið auk þeirra fjögurra bréfa sem Rannsóknarnefndin bað um.

Alls sendi forseti á þessum árum 3192 bréf til fjölmargra aðila, bæði innlendra og erlendra, um margvísleg efni.


Al Gore og forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,
Al Gore og forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, Mbl.is/Ómar Óskarsson
Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff með Mahmud Abbas, forseta …
Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff með Mahmud Abbas, forseta Palestínumanna.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka