Mun meiri halli á ríkissjóði en áætlað var

Fjármálaráðuneytið. stækka

Fjármálaráðuneytið. Reuters

Ríkisendurskoðun segir, að útlit sé fyrir að tekjur ríkisins á þessu ári verði nokkru hærri en fjárlög gerðu ráð fyrir en að halli á rekstrinum verði mun meiri. Segir Ríkisendurskoðun ljóst að aðgerðir um mitt ár sem ætlað var að hemja kostnað hafi ekki borið tilætlaðan árangur.

Stofnunin segir að almennt hafi ekki verið farið að tilmælum hennar frá því um mitt ár um að tekið verði á rekstrarvanda stofnana. Ríkisendurskoðun gagnrýnir að þótt langt sé liðið á árið hafi enn ekki verið tekin samræmd ákvörðun um meðferð ónýttra fjárheimilda frá árinu 2008.
 
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga fyrstu átta mánuði þessa árs kemur fram að heildartekjur ríkisins hafi verið nokkru lægri á tímabilinu en áætlað var. Hins vegar hafi heildargjöld reynst nokkurn veginn samkvæmt áætlun.

Ný áætlun fjármálaráðuneytisins gerir ráð fyrir að tekjur ársins í heild verði rúmum 4 milljörðum meiri en reiknað var með í upphafi árs og telur Ríkisendurskoðun líkur á að þetta gangi eftir. Aftur á móti er nú gert ráð fyrir að halli ríkissjóðs verði mun meiri en fjárlög gerðu ráð fyrir eða 182 milljarðar í stað 153 milljarða. Segir Ríkisendurskoðun ljóst að aðgerðir um mitt ár sem ætlað var að hemja kostnað hafi ekki borið tilætlaðan árangur.

Rekstur þriggja stofnana tekinn föstum tökum

Í skýrslunni er sérstaklega fjallað um stöðu 19 stofnana sem glímt hafa við erfiðleika í rekstri og/eða hafa þurft að mæta nýjum áskorunum vegna efnahagssamdráttarins. Að mati Ríkisendurskoðunar hefur rekstur þriggja þeirra, Háskólans á Akureyri, Námsmatsstofnunar og Raunvísindastofnunar Háskólans, verið tekinn föstum tökum og stefni í að útkoma ársins verði mun betri hjá þessum stofnunum en útlit var fyrir um mitt ár.

Aðrar stofnanir í þessum hópi eiga erfitt með að láta enda ná saman og stefnir í að meirihluti þeirra verði rekinn með halla á árinu. Af þessum stofnunum telur Ríkisendurskoðun að staðan sé einna verst hjá Landspítalanum, Landbúnaðarháskólanum og Hólaskóla. Almennt hafi ekki verið farið að tilmælum Ríkisendurskoðunar frá því um mitt þetta ár um að tafarlaust verði brugðist við til að bæta rekstur stofnana í vanda.
 
Ráðuneytin hafa gefið stofnunum mismunandi skilaboð um hvernig farið skuli með ónýttar fjárheimildir frá árinu 2008. Sum ráðuneytin settu þegar í upphafi ársins ákveðnar skorður við nýtingu slíkra heimilda meðan önnur leyfðu að þær væru fluttar óskertar milli ára. Þótt komið sé fram í október hafa stjórnvöld enn ekki samræmt ákvarðanir sínar í þessu efni. Í skýrslunni er þessi seinagangur gagnrýndur og bent á að ekki sé raunhæft að skerða svigrúm stofnana til að nota ónýttar heimildir nú þegar langt er liðið á árið. Ríkisendurskoðun hefur áður lagt til að mótaðar verði skýrar reglur um meðferð ónýttra fjárheimilda og eru þau tilmæli ítrekuð í skýrslunni. 

Skýrsla Ríkisendurskoðunar 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
GLÆSILEGIR
GLÆSILEGIR Teg. MYSTERY - Hægt að nota ÁN HLÝRA - Glæsileg blúnda, fæst í A, B, ...
Framstuðari á PT. Crushier 2005-8
Til sölu splunkunýr framstuðari. Fullt verð hér 135 þús.(Uppgefið Bíljöfur). Ég...
Ösp er nýtt úr með Mp4 spilara og fleiru
Öspin er 8GB armbandsúr, Mp3, Mp4, útvarp, myndasafn og fl. Verð 18.750,- Góð dæ...
Upphengi fyrir reiðhjól á rennibraut
Til sölu upphengi fyrir reiðhjól á rennibraut. rennibraut 3 metra með 10 krókum...
 
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Jobbtrygghet
Augl-/almannatengsl
JOBBTRYGGHET? UTFORDRENDE JOBB? ...
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...