Fagnar framhaldi kjarasamninga

Jóhanna Sigurðardóttir og Maud Olofsson, varaforsætisráðherra Svíþjóðar. stækka

Jóhanna Sigurðardóttir og Maud Olofsson, varaforsætisráðherra Svíþjóðar. mynd/norden.org

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fagnar því að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði haldi. „Það skiptir verulegu máli upp á að við náum okkur áfram í efnahagsaðgerðunum,“ sagði Jóhanna.

Ríkisstjórnin hefur komið að stöðugleikasáttmálanum á nokkrum fundum. Von er á sameiginlegri yfirlýsingu forsætisráðherra og fjármálaráðherra í dag um nokkur atriði varðandi stöðugleikasáttmálann. Þau snerta m.a. ríkisfjármálin og skattana.

Jóhanna lýsti vonbrigðum með verðbólguþróunina en þrátt fyrir síðustu mælingu kvaðst hún eiga von á að verðbólgan muni fara hratt niður, allar forsendur séu fyrir því. „Það er afar mikilvægt til þess að við náum okkar markmiðum í þessum stöðugleikamálum,“ sagði Jóhanna.

Ísland fær athygli á Norðurlandaráðsþingi

Jóhanna hefur verið á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi og fundum í tengslum við það undanfarna daga. Henni þótti mjög athyglisvert hve mikla athygli Ísland hefur fengið á þinginu og fundunum.

„Það var athyglisvert hve mikið var rætt um Ísland og aðildarumsókn þess [að Evrópusambandinu, ESB]. Henni hefur verið vel tekið og áhersla lögð á að hún nái fram að ganga. Það var einnig mikið rætt um efnahagskreppuna á Íslandi,“ sagði Jóhanna.

Hún sagði mikinn áhuga ríkja á því að Ísland gerist aðili að ESB. „Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, fékk líka mikla hvatningu um að láta á það reyna í þriðja sinn að Noregur sæki um aðild,“ sagði Jóhanna.

Á fundum með forsætisráðherrum Norðurlandanna, með fulltrúum Eystrasaltsríkja og með leiðtogum sjálfstjórnarsvæðanna Færeyja, Álands og Grænlands,  kvaðst Jóhanna hafa lýst óánægju sinni með hvernig lán Norðurlandanna, Icesave-deilan og endurskoðun áætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) voru tengd saman. Þessi tenging hafi valdið mikilli óánægju á Íslandi. 

Jóhanna kvaðst hafa lagt áherslu á þessa tengingu í gagnrýni sinni, en hún hafi ekki gagnrýnt það sem Norðurlöndin hafa gert fyrir okkur. „Þau hafa lagt mikið af mörkum með sinni lánafyrirgreiðslu sem nú losnar um til að styrkja gjaldeyrirsforða okkar.

„Þeirra skoðun er að þetta verði að vera hluti af áætlun AGS. Það er ávallt með þeim hætti hjá þeim löndum sem fá aðstoð í gegnum AGS. Engu að síður hélt ég því til haga að mér þætti ekki eðlilegt að tengja þessa hluti saman með þessum hætti. Það hafi seinkað verulega endurskoðun hjá AGS, sérstaklega varðandi Icesave-málið.“

Vonir bundnar við loftslagsráðstefnu

Jóhönnu þótti þrennt standa upp úr á Norðurlandaráðsþinginu í gær. Hún nefndi fyrst Norðurlönd og Evrópu. Mikið var rætt um samvinnu á því sviði og hvað Norðurlöndin geti sameiginlega lagt af mörkum. Einnig hvaða áhrif það muni hafa á Norðurlöndin þegar flestar þjóðirnar verði komnar í ESB.

Þá brunnu loftslagsmálin mjög á þingfulltrúum. Miklar vonir eru bundnar við loftslagsráðstefnu Sþ í Kaupmannahöfn í desember en einnig nokkurrar svartsýni. Menn óttast að undirbúningur fyrir fundinn sé ekki nógu langt kominn. Skiptar skoðanir eru um hvort þar nást lagalega bindandi niðurstöður, eða hvort einungis næst pólitísk samstaða um mál. Jóhanna sagði áherslu lagða á að Norðurlöndin leggi sitt af mörkum til að árangur náist á loftslagsráðstefnunni.

Í þriðja lagi var alþjóðlega fjármálakreppan áberandi í umræðunni og viðbrögð við henni. 

Jóhanna Sigurðardóttir á blaðamannafundu forsætisráðherra Norðurlandanna.

Jóhanna Sigurðardóttir á blaðamannafundu forsætisráðherra Norðurlandanna. mynd/norden.org

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Kawasaki KX 85 árg. 2007 til sölu.
Nýr cylender, nýr stimpill, nýjar legur ì mòtor, ný dekk, ný plöst og ný lìmmið...
VOLVO S40
Er með til sölu VOLVO S40, keyrður 90.000 km, árgerð 2004, bensín, 2435 cc sla...
58 fermetrar
Til leigu húsnæði á annari hæð í Dugguvogi 6 (Fossberg) Eitt rými með litlum el...
Ullarslá
Til sölu glæsileg íslensk ullarslá (græn að lit) með fallegum brúnum kraga, eins...
 
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...