Fundi AGS um Ísland lokið
Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur lokið umfjöllun um efnahagsáætlun Íslendinga á fundi í dag. Með því veitir stjórnin heimild til þess að afgreiða næsta hluta af lánasamningi sjóðsins til Íslands að fjárhæð 167,5 milljónir dala, jafnvirði 21 milljarðs króna.
Í tilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu segir, að auk þess sé að vænta viðbótarlána frá Norðurlandaþjóðunum að fjárhæð 625 milljóna dala, 78 millljarða króna, í kjölfar þessarar samþykktar sjóðsins.
„Við fögnum þessum áfanga sem viðurkenning á þeim árangri sem náðst hefur í efnahagsmálum og við endurreisn fjármálakerfisins á undanförnum mánuðum. Gera má ráð fyrir því að traust alþjóðlegra fjármálamarkaða aukist í kjölfarið þar sem Íslendingar hafa staðið við öll meginmarkmið efnahagsáætlunarinnar og njóta til þess fulls stuðnings AGS og vinaþjóða," sagði Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra, í tilkynningunni.
Næsta endurskoðun efnahagsáætlunarinnar er nú áformuð eftir miðjan desember á þessu ári. Vegna þeirra tafa sem orðið hafa á endurskoðun áætlunarinnar hefur samstarf AGS og Íslendinga verið framlengt til maí 2011 frá nóvember 2010 eins og gert var ráð fyrir í upprunalegu samkomulagi.
Við hverja endurskoðun senda íslensk stjórnvöld sjóðnum uppfærða viljayfirlýsingu. Í yfirlýsingu íslenskra stjórnvalda til stjórnar sjóðsins er þess getið að meginmarkmið efnahagsáætlunarinnar séu að tryggja stöðugleika krónunnar, endurreisa fjármálakerfið og tryggja sjálfbærni í opinberum fjármálum á næstu misserum. Unnið hafi verið ötullega að þessum markmiðum en óska þurfi undanþágu í nokkrum liðum þar sem ekki hafi verið unnt að ná tilsettum markmiðum fyrir þann tíma sem tilgreindur var í upprunalegri áætlun. Stjórn sjóðsins féllst á að veita undanþágu frá ákvæðum um hreinan fjármagnsjöfnuð ríkissjóðs, hreinan gjaldeyrisforða Seðlabankans og endurfjármögnun viðskiptabankanna auk þess sem tillit er tekið til aðstæðna varðandi áframhaldandi framkvæmd gjaldeyrishafta.
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn Þ Gíslason EKKI EINN EINASTI ÍSLENDINGUR GETUR VERIÐ ÁNÆGÐUR MEÐ HRUNIÐ, EN ... -
Ingólfur H Þorleifsson Að láta taka sig í bakaríinu. -
Jón Ingi Cæsarsson Enn eitt skrefið í endurreisninni. -
Kristinn Pétursson Skipum nú nýja samninganefnd í Icesave málið -
Haraldur Haraldsson Fundi AGS um Ísland lokið/ Hvað boðar nýjárs blessuð sól!!!!!!
Innlent »
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 30. júlí 2009, Innlent Vonast eftir láni í lok ágúst
- Þriðjudagur, 15. desember 2009, Innlent Icesave-samningur forsenda fyrir endurskoðun hjá AGS
- Föstudagur, 16. apríl 2010, Innlent Gylfi: Engar nýjar skuldbindingar
- Föstudagur, 13. mars 2009, Innlent Störfum sendinefndar AGS lokið í bili
- Föstudagur, 31. júlí 2009, Innlent Stjórnvöld halda í vonina
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































