Hækkun tryggingagjalds auki ekki útgjöld sveitarfélaga

Mörg sveitarfélög eiga við mikla fjárhagserfiðleika að stríða.
Mörg sveitarfélög eiga við mikla fjárhagserfiðleika að stríða. Þorvaldur Örn Kristmundsson

„Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga treystir því að staðið verði við það mikilvæga loforð sem gefið var í viðræðum um stöðugleikasáttmálann af hálfu forsætisráðherra og fjármálaráðherra með stuðningi aðila vinnumarkaðarins, og felst í því að komi til hækkunar tryggingagjalds verði tryggt af hálfu ríkisins að hækkunin leiði ekki til útgjaldaauka sveitarfélaga."

Þetta segir í ályktun sem stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti í gær. Samtök atvinnulífsins hafa lagt til að tryggingagjald verði hækkað en í staðinn verði hætt við að leggja á orku- og auðlindagjöld. Verði þessi leið farin gæti þetta aukið útgjöld sveitarfélaganna mikið.

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga ítrekar jafnframt bókun frá fundi sínum 28. ágúst 2009 þar sem minnt er á að ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum fyrr á þessu ári hafa veruleg áhrif til hækkunar á útgjöldum sveitarfélaga á þessu ári og því næsta, en staða margra sveitarfélaga er mjög erfið nú þegar. Áætlað er að áhrifin af hækkun tryggingagjalds sl. sumar muni nema um tveimur milljörðum króna á árunum 2009 og 2010 og hefur í för með sér að öll sú hagræðing sem sveitarfélögin hafa verið að vinna að í launaútgjöldum er unnin fyrir gíg.

"Sveitarfélögin hafa fram til þessa lagt höfuðáherslu á að verja störfin og forðast uppsagnir, þrátt fyrir verulega hækkun útgjalda, s.s. vegna félagsþjónustu þar sem fjárhagsaðstoð hefur hækkað um 70% og húsaleigubætur um 60% milli ára. Sveitarfélögin geta ekki við þessar aðstæður tekið á sig aukin útgjöld vegna ráðstafana í ríkisfjármálum."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert