Á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði og í Miðdölum en hálkublettir víðar. Hálkublettir eru einnig nokkuð víða á Vestfjörðum en hálka á Kleifaheiði og Hrafnseyrarheiði.
Á Norðurlandi er víðast hvar einhver hálka, ýmist skráð sem hálka eða hálkublettir.
Á Austurlandi, er flughált á Fjarðarheiði og víða hálka eða hálkublettir inn til landsins þótt autt sé með ströndinni.