Kaupþings-útibúum fækkað á landsbyggðinni

mbl.is/Ómar

Nýi Kaupþing banki hefur ákveðið að loka þremur útibúum á landsbyggðinni og sameina þau öðrum. Þetta eru útibúin á Akranesi sem sameinað verður Mosfellsútibúi, í Reykjanesbæ sem sameinað verður Hafnarfirði og á Hofsósi sem sameinað verður Sauðárkróksútibúinu. Þetta kemur fram á vef Skessuhorns.

Fram kemur að einnig hafi verið ákveðið að stytta afgreiðslutíma þriggja landsbyggðarútibúa þannig að þau verði opin frá klukkan 12:30 til 16. Þetta eru útibúin í Grundarfirði, Vík og Kirkjubæjarklaustri. Útibúi Nýja Kaupþings á Akranesi verður lokað 7. desember næstkomandi.

Þá segir að búið sé að skrifa viðskiptavinum þess bréf þar sem þeim sé boðið að færa viðskipti sín í Mosfellsbæ eða í Borgarnes. Hjá útibúi Nýja Kaupþings á Akranesi starfi tíu manns og hafi þeim öllum verið boðið starf hjá bankanum, flestum í Mosfellsbæ, en einnig í Borgarnesi og í höfuðstöðvum bankans í Reykjavík þangað sem Svanborg Þórdís Frostadóttir útibússtjóri fari til starfa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert