Sjálfstæðismenn: Forsetinn myndi hafna Icesave
Frá fundi fjárlaganefndar Kristján Þór Júlíusson, Ásbjörn Óttarsson, Ólöf Nordal, Höskuldur Þórhallsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Guðbjartur Hannesson og Árni Þór Sigurðsson. Ómar Óskarsson
Icesave-frumvarpið, sem nú er til umræðu á Alþingi, er í mikilli andstöðu við lögin um Icesave frá því ágúst síðastliðnum. Meirihluti fjárlaganefndar þingsins hefur nú haft vilja Alþingis, sem þá var lýst yfir, að engu með því að leggja til að nýja frumvarpið verði samþykkt án breytinga.
Þetta segir í minnihlutaáliti Sjálfstæðismanna í fjárlaganefnd, sem birt var í dag. Álitið er samið af þeim Kristjáni Þór Júlíussyni, Einari Kristni Guðfinnssyni og Ásbirni Óttarssyni. ,,Þeir fyrirvarar sem mestu skiptu til að takmarka ríkisábyrgðina vegna Icesave-samninganna eru nánast að engu orðnir," segir í álitinu.
„Skuldbindingar íslenska ríkisins eru á ný orðnar óljósar og ófyrirsjáanlegar bæði hvað varðar fjárhæðir og tímalengd. Öllum má ljóst vera að fyrirvararnir sem settir voru fyrir ríkisábyrgðinni í haust geta ekki verið réttlæting fyrir því að samþykkja ríkisábyrgðina samkvæmt fyrirliggjandi frumvarpi," segir enn fremur þar.
Og þingmennirnir hvetja einnig Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, til þess að taka í taumana ef frumvarpið fer óbreytt í gegn:
„Með því frumvarpi sem hér er til umfjöllunar hafa þeir fyrirvarar Alþingis sem forsetinn taldi svo mikilvæga þegar hann staðfesti hin fyrri Icesave-lög, og voru forsenda staðfestingar hans, verið að engu gerðir.
Verði frumvarpið samþykkt óbreytt sem lög frá Alþingi, eins og meiri hluti fjárlaganefndar leggur til að gert verði, telur 3. minni hluti einsýnt að forseti lýðveldisins muni, í ljósi fyrri yfirlýsingar, synja lögunum staðfestingar, með vísan til hennar og 26. gr. stjórnarskrárinnar.
Synji forseti lögunum staðfestingar er ljóst að Icesave-málið mun ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu," segja Sjálfstæðismennirnir í áliti sínu.
Minnihlutaálit Sjálfstæðismanna í fjárlaganefnd í heild sinni
Bloggað um fréttina
-
Magnús Helgi Björgvinsson Ágætu sjálfstæðismenn -
Axel Jóhann Axelsson Forsetinn mun ekki hafna Icesave -
Ívar Andersen Icesave og IMF lánið tengt saman! -
Haraldur Haraldsson Sjálfstæðismenn: Forsetinn myndi hafna Icesave/?????? -
Jón Ingi Cæsarsson Kjánalegir Sjálfstæðismenn. -
Ómar Geirsson Augljóst mál.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 2. desember 2009, Innlent Næstum tuttugu þúsund áskorendur
- Mánudagur, 31. ágúst 2009, Innlent Hvattur til að synja Icesave
- Miðvikudagur, 9. desember 2009, Innlent Meirihluti vill kjósa um Icesave
- Miðvikudagur, 25. nóvember 2009, Innlent Forseti synji Icesave
- Mánudagur, 16. nóvember 2009, Innlent Icesave afgreitt út úr nefnd
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































