Íslendingur fannst látinn
Lögregla í Noregi hefur staðfest, að lík sem fannst í Krøderfirði í dag er af 48 ára gömlum Íslendingi, sem leitað hefur verið að frá því í nótt.
Leitarþyrla fann lík mannsins laust fyrir hádegi um 20 metra frá landi í Krøderen um 500 - 600 metra norðan við Noresund. Þyrlu, bátum og leitarhundum auk gangandi leitarmanna var beitt við leitina að Íslendingnum.
Að sögn norsku fréttastofunnar NTB fundust persónuskilríki á líkinu sem staðfesta að um að ræða manninn sem leitað var að.
Síðast sást til mannsins þegar hann var á leið heim frá Osló til Gol í Hallingdal aðfaranótt sunnudags með áætlunarbíl. Hann var ölvaður og látinn yfirgefa áætlunarbílinn á stoppistöð í miðbæ Noresund í Krödsherad fyrir kl. eitt um nóttina, um 90 km frá Hallingdal.
Vefsíða Aftenposten segir að síðast hafi sést til mannsins þar sem hann gekk með þjóðvegi 7 í átt til Hallingdal. Mynd af manninum náðist í eftirlitsmyndavél á bensínstöð í Noresund kl. 00.28 aðfaranótt sunnudagsins. Lögreglan hefur fengið ábendingar frá ökumönnum sem áttu leið um þjóðveg 7 um að þeir hafi séð manninn á gangi með veginum. Maðurinn hringdi heim til sín um kl. 00:57 en gat þá ekki gert grein fyrir því hvar hann var staddur.
Rútubílstjóri fór eftir reglum
Framkvæmdastjórar rútufyrirtækisins Firda Billag segja við norska fjölmiðla, að rútubílstjórinn hafi fylgt öllum reglum þegar hann vísaði Íslendingnum út úr bílnum. Þannig hafi manninum verið hleypt út í þéttbýli og bílstjórinn hafi haft samband við lögreglu og látið vita um atvikið. Hann hafi ekki lagt af stað aftur fyrr en lögreglan heimilaði það.
Sýslumaðurinn í Krødsherad segir við fréttastofu NTB, að lögreglan hafi haldið á staðinn til að sækja manninn en fann hann ekki þegar hún kom á staðinn þar sem honum var vísað út úr rútunni.
Bloggað um fréttina
-
-
veffari Að bíða eftir lögreglu... -
Axel Jóhann Axelsson Hörmulegur atburður -
Margrét St Hafsteinsdóttir Lögreglan í Noregi ömurleg
Innlent »
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 23. nóvember 2009, Innlent Íslendings saknað í Noregi
- Föstudagur, 22. janúar 2010, Innlent Fannst látinn í Hvalfirði
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Mánudagur, 11. október 2010, Innlent Strákagöng lokuð í nótt
- Miðvikudagur, 16. desember 2009, Innlent Fannst um borð í bátnum
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































