Lík fannst á leitarsvæðinu

Leitarþyrla fann nú fyrir stundu lík karlmanns 20 metra frá landi í Krøderfirði við Noresund. Leit að 48 ára gömlum Íslendingi hefur staðið yfir í nágrenni fundarstaðarins. Lögreglan vill ekki staðfesta að líkið sé af þeim sem leitað var, að sögn norskra fjölmiðla.

Fréttavefurinn hallingdolen.no segir að lík mannsins hafi fundist í Krøderfirði um 500 - 600 metra norðan við Noresund. Bæði þyrlu, bátum og leitarhundum auk gangandi leitarmanna hefur verið beitt við leitina að Íslendingnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert