Rannsóknin á vitorði fjölda manna
Embætti sérstaks saksóknara segir, að ekkert bendi til þess að starfsmenn embættisins hafi komið á framfæri upplýsingum, hvorki um mál Baldurs Guðlaugssonar né nokkurt annað sem þar er til meðferðar.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Ólafi Þór Haukssyni, sérstökum saksóknara, vegna opins bréfs Karls Axelssonar, lögmanns Baldurs, í Morgunblaðinu í dag. Segir m.a. í yfirlýsingunni, að tugur manna hafi verið yfirheyrður vegna rannsóknar máls Baldurs og að krafa um kyrrsetningu eigna hans hafi verið til meðferðar hjá sýslumanni. Umfjöllun fjölmiðla um kyrrsetninguna hafi byrjað að því ferli loknu.
Yfirlýsing Ólafs er eftirfarandi:
Morgunblaðið birti í dag, þriðjudaginn 24. nóvember, opið bréf sem Karl Axelsson lögmaður ritar sérstökum saksóknara. Karl er verjandi Baldurs Guðlaugssonar og gætir hagsmuna hans við rannsókn embættis sérstaks saksóknara. Í bréfinu er embættið sakað um alvarlegan trúnaðarbrest sem nauðsynlegt er að svara.
Karl segir m.a. í bréfi sínu "...mál Baldurs hefur fyrir tilverknað einhverra sem til þess þekkja, sýnilega bæði frá embætti þínu og Fjármálaeftirliti, orðið fjölmiðlamál. Sá ítrekaði leki hefur svo alltaf átt sér stað á þeim tímapunktum þegar það hentaði ímyndaherferð viðkomandi embætta best en Baldri verst."
Það er ekkert sem bendir til þess að starfsmenn embættis sérstaks saksóknara hafi komið á framfæri upplýsingum, hvorki um þetta mál né nokkurt annað sem er til meðferðar hjá embættinu.
Fjármálaeftirlitið tók þetta tiltekna mál til rannsóknar 11. nóvember 2008. Því var vísað til embættis sérstaks saksóknara 9. júlí síðastliðinn. Um tugur manna hefur verið yfirheyrður í tengslum við rannsókn málsins. Óskað var eftir að eignir yrðu kyrrsettar í tengslum við rannsókn málsins með beiðni til sýslumanns 11. nóvember 2009 og kyrrsetningarmálinu lauk 13. nóvember. Þá var kyrrsetningin tilkynnt í samræmi við lög um kyrrsetningu og lögbann. Umfjöllun fjölmiðla um kyrrsetningu eignanna hófst að þessu ferli loknu. Rannsókn málsins var því orðin á vitorði fjölda manna utan embættis sérstaks saksóknara og því hæpið að fullyrða að um sé að ræða leka frá embættinu.
Lögmæti rannsóknarinnar er unnt að bera undir dómstóla sem taka afstöðu til réttmæti hennar. Það verður ekki gert í fjölmiðlum. Vegna rannsóknarhagsmuna tjáir embættið sig ekki frekar um málið.
Ólafur Þór Hauksson,
sérstakur saksóknari
Bloggað um fréttina
-
Gísli Foster Hjartarson Sko strák -
Þorsteinn H. Gunnarsson Þjóðmál -
Guðjón Sigþór Jensson Einkennileg aðferð - Hver var tilgangurinn? -
Erling Garðar Jónasson Þegar ósnertanlegir eru snertir, þá vita allir. -
Jón Ingi Cæsarsson Eimreiðarklíkan að grípa til varna ?
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 13. janúar 2010, Innlent Ógildingar á kyrrsetningu krafist
- Þriðjudagur, 17. nóvember 2009, Innlent Krefst kyrrsetningar á eignum
- Föstudagur, 18. desember 2009, Innlent Rannsókn á máli Baldurs langt komin
- Miðvikudagur, 6. janúar 2010, Innlent Kröfu Baldurs um frávísun hafnað
- Föstudagur, 26. febrúar 2010, Innlent Heimilt að kyrrsetja innistæður Baldurs
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































