Vissi ekki um kröfu Yngva Arnar

Árni Páll Árnason í ræðustóli Alþingis.
Árni Páll Árnason í ræðustóli Alþingis. mbl.is/Eggert

Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, sagðist á Alþingi í dag ekki hafa vitað af því að Yngvi Örn Kristinsson, sem starfar sem ráðgjafi í félagsmálaráðuneytinu, myndi gera 230 milljóna króna kröfu í þrotabú Landsbankans. 

Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokks, spurði Árna Pál í fyrirspurnartíma, hvort hann styddi kröfu þessa aðstoðarmanns síns í þrotabú bankans og hvort hann teldi að krafan sé siðferðislega rétt. Spurði Gunnar Bragi hvort Árni Páll teldi ástæðu til að endurskoða ráðningu síns helsta ráðgjafa í ljósi þess sem fram hafi komið.

Árni Páll sagði, að Yngvi Örn væri ekki aðstoðarmaður sinn heldur hefði verið ráðinn, hæfni sinnar vegna, til að sinna afmörkuðum verkefnum í ráðuneytinu. Þeim verkefnum væri að ljúka og Yngvi Örn hefði ekki verið ráðinn í fast starf. 

Ráðherrann sagði, að sér hefði ekki verið kunnugt um hvaða kröfur Yngvi Örn væri að gera í þrotabú Landsbankans. Hann sagðist hins vegar aðspurður ekki hefðu gert þá kröfu ef hann hefði verið í sporum Yngva Arnar.

Árni Páll sagði að það væri ekki sinn vilji, að raða fólki inn í ráðuneytið án auglýsinga. Hann lýsti jafnframt þeirri skoðun, að taka eigi ráðningavaldið af ráðherrum og að ráðning embættismanna verði á einum stað og þeir flæði síðan gegnum stjórnkerfið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert