Vara við flótta fólks úr landi

Höfuðstöðvar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington.
Höfuðstöðvar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington.

Bandarísku hagfræðingarnir James K. Galbraith og William K. Black gagnrýna mjög forsendur í skýrslu Alþjóðgjaldeyrissjóðsins frá 20. október sl. varðandi sjálfbærni vergra erlendra skulda íslenska þjóðarbúsins.

Kemur þetta fram í bréfi, sem þeir sendu Gunnari Tómassyni hagfræðingi og hann sendi áfram til alþingismanna í gær.

Segja þeir að í skýrslu AGS sé m.a. látið undir höfuð leggjast að íhuga áhrif mikilla skattahækkana, niðurskurðar á opinberri þjónustu, samdráttar atvinnutekna, mögulegrar gengislækkunar og atvinnuleysis á flutning vinnandi fólks af landi brott.

Þá segja þeir að mat AGS á hreinni skuldastöðu Íslands sé hæpið, þar sem það byggist á þeirri forsendu að hægt sé að selja erlendar eignir fyrir bókfært virði þeirra.

Einnig gagnrýna þeir spá AGS um kröftugan hagvöxt hér á landi þrátt fyrir miklar skattahækkanir og stórfelldan niðurskurð opinberra útgjalda.

Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert