430 fjölskyldur fengu aðstoð í gær

Fjögur hundruð og þrjátíu fjölskyldur fengu úthlutað mat og fatnaði hjá Fjölskylduhjálp Íslands í gær, á vikulegum úthlutunardegi. Aldrei hafa fleiri leitað til Fjölskylduhjálparinnar á einum degi. 

Fyrir ári var verið að úthluta mat og fatnaði til um það bil 200 fjölskyldna vikulega, að því er fram kemur í tilkynningu frá Fjölskylduhjálp Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert