Víðförull þjófur

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt 19 ára gamlan pilt í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ítrekaðan þjófnað. Pilturinn býr í Vestmannaeyjum en var dæmdur fyrir bílþjófnað í Súðavík og innbrot í skóla í Kópavogi.  Hvorutveggja brotin voru framin árið 2007. 

Pilturinn hefur einnig verið dæmdur fyrir þjófnað í Reykjavík árið 2005 og tvívegis fyrir þjófnað á Akureyri.

Héraðsdómur gagnrýnir þann drátt sem varð á afgreiðslu mála piltsins en ákæran vegna brotanna tvegga, sem nú var dæmt í, var gefin út 8. september. Segir dómurinn að þessi dráttur á afgreiðslu mála mannsins sé óútskýrður og ámælisverður. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert