Barnaheill telur vegið að rétti barna
Barnaheill á Íslandi lýsa yfir áhyggjum vegna frumvarps til laga um skerðingu á hámarksgreiðslum úr fæðingarorlofssjóði og frestun á töku orlofsins um þrjú ár. Barnaheill telja að með boðaðri breytingu sé ekki einungis verið að skerða réttindi foreldra, heldur að vegið sé að þeim rétti barnsins að fá að njóta sem lengstrar umönnunar móður og föður á fyrsta ári ævi þess.
„Það fyrirkomulag fæðingarorlofs sem hefur verið við lýði á Íslandi undanfarin ár hefur markað tímamót hvað varðar réttindi barna og hefur m.a. stuðlað að aukinni þátttöku feðra í uppeldi barna sinna á fyrstu mánuðum ævi þeirra. Það hefur einnig gert foreldrum kleift að verja lengri tíma með barninu heima við og barnið því farið seinna í dagvistun utan heimilis,“ segir m.a. í tilkynningu frá samtökunum.
Þar er einnig bent á að þau tilfinningatengsl sem myndist milli barns og foreldra þess á fyrsta ári barnsins, séu grunnurinn að öðrum tilfinninga- og félagstenglsum síðar á ævinni.
„Barn sem getur myndað góð og heilbrigð tengsl er með sterkari sjálfsmynd og mun ganga betur í leik og starfi. Því er afar mikilvægt fyrir þroska barnsins að það fái að njóta sem mestra samvista við foreldra sína á fyrsta æviári þess. Frestun á töku orlofsins um þrjú ár getur leitt til þess að barnið þurfi að fara fyrr í dagvistun utan heimilis en annars hefði verið raunin og það kemur ekki í stað samfellds fæðingarorlofs.
Allar breytingar er varða skerðingu og styttingu á fæðingarorlofi hafa því mikil áhrif á velferð barna og eru, að mati Barnaheilla, skerðing á réttindum þeirra. Barnaheill minna á að samkvæmt 3. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eiga allar ákvarðanir eða ráðstafanir yfirvalda er varða börn að byggja á því sem börnum er fyrir bestu.
Barnaheill hvetja stjórnvöld til að hafa hagsmuni barnsins að leiðarljósi þegar kemur að málefnum sem snerta þau og hvetja ríkisstjórnina til að falla frá fyrirhugaðri skerðingu og styttingu á fæðingarorlofi foreldra í hvaða mynd sem er.“
Innlent »
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 25. nóvember 2009, Innlent Skerðingu fæðingarorlofs mótmælt
- Fimmtudagur, 9. desember 2010, Innlent Barnaheill skora á stjórnvöld
- Þriðjudagur, 27. janúar 2009, Innlent Barnaheill harma sýknudóminn
- Mánudagur, 30. nóvember 2009, Innlent Fæðingarorlof með því stysta á Norðurlöndum
- Mánudagur, 23. ágúst 2010, Innlent Færri karlar taka fæðingarorlof eftir hrun
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































