Yndislega ótrúlega ómerkilegt
Til nokkurra orðaskipta kom milli Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, og þingmanna stjórnarandstöðunnar, á Alþingi í dag vegna ummæla, sem Steingrímur viðhafði fyrr í vikunni um að sumar ástæður þess að Icesave-málið verði að klára sem fyrst séu þess eðlis að ekki hægt sé að greina frá þeim á Alþingi.
Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins, vildi að ummæli fjármálaráðherra væru skýrð og að forseti þingsins beitti sér fyrir því, að ráðherrann upplýsti þingmenn um það á öðrum vettvangi hvað ekki mætti segja í ræðustóli þingsins.
„Þetta er alveg yndislega, ótrúlega ómerkilegt. Það er alveg sama hvernig maður reynir að fara yfir málin, það er umsvifalaust komið og reynt að blása það út og gera úr því einhvern óskapnað út af engu," sagði Steingrímur.
Grímulausar hótanir aðila í Evrópusambandinu
Fyrr í dag fjallaði Steingrímur í ræðu nánar um fyrrgreind ummæli sín og sagðist hafa haft gaman af því, að reynt hefði verið að leggja mikla merkingu í þau. „Vita menn það ekki, að iðulega eru einhverjir pólitískir og viðskiptalegir hagsmunir á ferð, sem gera það að verkum, að menn þurfa að gæta orða sinna og vega og meta hvað þjónar hagsmunum landsins að segja opinberlega?" spurði Steingrímur.
Hann sagði að af skiljanlegum ástæðum hefði ekki verið talað hátt hér á landi fyrstu vikurnar eftir að grímulausar hótanir bárust frá aðilum innan Evrópusambandsins um að láta Íslendinga hafa verra af ef þeir drifu sig ekki í að klára Icesave.
„Ég er einfaldlega að tala um hinn augljósa veruleika, að ýmislegt tengt okkar stöðu nú er viðkvæmt. Er það eitthvað skrýtið? Hefur ekki orðið eitt hrun? Hefur ekki orðspor Íslands stórskaddast? Bíður okkar ekki það verkefni að reyna að endurreisa traust og fá menn til að trúa því á nýjaleik að það sé hægt að semja við Íslendinga og eiga við þá viðskipti?" spurði Steingrímur.
Hann sagði að ýmiskonar vandamál væru í samskiptum Íslendinga við fjölmarga aðila, þar á meðal væru mörg óleyst og erfið vandamál sem tengdust hagsmunum Íslendinga hjá mörgum stærstu og mikilvægustu langtíma fjármögnunaraðilum fjárfestinga á Íslandi, þar á meðal stórum norrænum og evrópskum bönkum og fjárfestingarsjóðum.
„Og auðvitað tölum við varlega um það héðan úr ræðustóli á Alþingi," sagði Steingrímur.
Bloggað um fréttina
-
Guðrún María Óskarsdóttir. Þetta er nú aumlegasta ræða sem ég hefi heyrt..... -
Andri Geir Arinbjarnarson Ríkisábyrgð þýðingarlaus -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Yfirlætisleg hegðun Steingríms -
Guðjón Sigþór Jensson Réttmætur reiðilestur Steingríms -
Friðrik Friðriksson Leikrit fáranleikans -
Axel Jóhann Axelsson Íslendingar beittir viðskiptaþvingunum -
Sigurður Jónsson Steingrímur hrópar úlfur,úlfur. -
Högni Jóhann Sigurjónsson Í mínum huga............. -
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir Samfylkingar svik. -
Hlynur Jörundsson Yndislega ótrúlega ómerkilegt .... eða hvað -
Baldur Hermannsson Ráðherrablók í hriplekum manndrápsbolla -
Magnús Helgi Björgvinsson Stjórnarandstaðan furðulega sein að "fatta" -
Einhver Ágúst Kallinn er bara í sjálfsvörn.... -
Jakob Falur Kristinsson Orðaskipti -
Páll Höskuldsson Atgervisflótti lækna er rétt að byrja -
Sævar Helgason Er Icesave málið upphaf nýrra ríkisábyrgða í heiminum ? -
Kristján Karlsson ohh þessir framsóknarmenn -
Gunnlaugur Bjarnason Er Steingrímur langt undir meðalgreind ? -
Jón Valur Jensson Steingrímur gerði úlfalda úr mýflugu, reynir síðan að krafsa yfir ... -
Halldór Halldórsson Kysstu þá bara vöndinn Steingrímur, en ........ -
Jóhannes Ragnarsson Ég dauðöfunda Steingrím J.
Innlent »
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Fimmtudagur, 5. mars 2009, Innlent Deildu hart í þingsal
- Fimmtudagur, 16. desember 2010, Innlent ESA tók þátt í að kúga Ísland
- Mánudagur, 30. nóvember 2009, Innlent Verður að klára Icesave af ótilgreindum ástæðum
- Fimmtudagur, 1. október 2009, Innlent Fundað með stjórnarandstöðu
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































