Ásmundur Einar sagði já

Ásmundur Einar Daðason.
Ásmundur Einar Daðason. mbl.is/Kristinn

Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, greiddi atkvæði með 1. grein frumvarps um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninganna í atkvæðagreiðslu á Alþingi nú síðdegis.

Hann sagði hins vegar að endanleg afstaða hans til málsins færi eftir niðurstöðu fjárlaganefndar þingsins, sem fær frumvarpið nú til meðferðar.

Afstaða Ásmundar Einars til frumvarpsins hefur ekki komið fram með skýrum hætti fram að þessu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert