Gagnrýnir lánveitingar Seðlabankans

stækka

mbl.is/Golli

Ríkisendurskoðun gagnrýnir í nýrri skýrslu um endurskoðun ríkisreiknings árið 2008 útgjöld stofnana umfram fjárheimildir og mismunandi fyrirkomulag greiðslna fyrir yfirvinnu. Þá telur hún að ýmsum spurningum er varða lánveitingar Seðlabankans til fjármálafyrirtækja á síðasta ári sé ósvarað.

Í skýrslunni kemur fram að ekki séu gerðar verulegar athugasemdir við reikningsskil stofnana fyrir síðasta ár. Hins vegar sé bent á tiltekna veikleika í innra eftirliti hjá allmörgum þeirra.
 
Í skýrslunni er bent á að í árslok 2008 voru 58 fjárlagaliðir með uppsafnaðan halla umfram 4% af fjárheimild og 214 með uppsafnaðan tekjuafgang umfram sama mark. Ríkisendurskoðun hefur mörg undanfarin ár vakið athygli á hallarekstri stofnana og hvatt stjórnvöld til að bregðast við í samræmi við ákvæði laga og reglna. Þá hefur stofnunin hvatt til þess að mótaðar verði skýrar reglur um meðferð ónýttra fjárheimilda.
 
Samkvæmt athugun Ríkisendurskoðunar hefur stór hluti stofnana ekki fellt greiðslur fyrir ómælda yfirvinnu að fullu inn í föst laun þrátt fyrir að kjarasamningar frá árinu 2006 mæli fyrir um það. Hjá þessum stofnunum er þó mismunandi hve stór hluti starfsmanna fær sérstaklega greitt fyrir yfirvinnu og fyrir hve margar vinnustundir. Ríkisendurskoðun telur að þetta valdi því að launakerfi ríkisins sé mjög ógagnsætt.

Tapaðar kröfur Seðlabanka 345 milljarðar 

Fjallað er um tap Seðlabanka Íslands vegna ótryggðra veðlána hans til fjármálafyrirtækja á árinu 2008. Í árslok námu kröfur bankans vegna slíkra lána alls 345 milljörðum króna. Tap bankans nam 75 milljörðum en ríkissjóður yfirtók 270 milljarða.

Ríkisendurskoðun segir, að fyrir liggi að hinir föllnu bankar öfluðu sér lausafjár með lánum frá minni fjármálafyrirtækjum sem aftur fengu lán frá Seðlabankanum gegn ótryggðum bréfum. Í ágúst 2008 herti bankinn reglur sínar um veðtryggingar og setti þar með skorður við þessari leið bankanna til að útvega sér lausafé.

„Að mati Ríkisendurskoðunar má spyrja hvers vegna hann brást ekki fyrr við þessum „leik‘‘ bankanna og herti kröfur um veð gegn lánum til minni fjármálafyrirtækja. Að mati Ríkisendurskoðunar hefði þetta getað dregið úr því tjóni sem ríkissjóður og Seðlabankinn urðu fyrir við fall bankanna," segir m.a. í skýrslunni.

Í skýrslunni er fjallað um þann mikla viðsnúning sem varð í rekstri ríkisins á síðasta ári miðað við árin á undan sem rekja má til bankahrunsins. Eftir að hafa skilað tekjuafgangi fjögur ár í röð, 2004–2007, varð um 220,5 milljarða króna halli á rekstrinum árið 2008 og hefur hann aldrei verið meiri í sögu lýðveldisins. Heildargjöld ríkisins hækkuðu um 73% í krónum talið frá árinu 2007 en tekjur drógust saman um tæplega 3%. Þá jukust langtímaskuldir ríkisins verulega eða sem nemur 127,5%.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.

„Ég er í skýjunum“

Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjón-keppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »
Jónsi og Greta Salóme.

„Mjög sérstök tilfinning“

Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka

Geir H. Haarde fyrir Landsdómi.
Í gær, 19:52 Jafnmargir eru því fylgjandi að ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði dregin til baka og andvígir því, samkvæmt niðurstöðum úr könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins sem greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. Meira »

Hvessir af suðri seint í kvöld

Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt.
Í gær, 17:16 Heldur hvessir af suðri í kvöld og hlýnar á landinu, samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt, en slyddu og rigningu í byggð. Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð byljóttum vindi í nótt og mjög hvössum vindhviðum. Meira »

Úrslitakeppnin hafin í Hörpu

Keppnin fer fram í Hörpu.
Í gær, 20:33 Úrslitakvöld forkeppni Evróvisjón er hafið í Hörpu, en í kvöld kemur í ljós hverjir keppa fyrir hönd Íslands í lokakeppni söngvakeppninnar sem fram fer í Bakú í Aserbaídjan síðar á árinu. Meira »

Fjör á 112-deginum á Húsavík

Börnum og unglingum var boðið í stutta sjóferð á Jóni Kjartanssyni, báti Björgunarsveitarinnar Garðars.
Í gær, 17:35 Víðar var haldið upp á 112-daginn en aðeins í Reykjavík. Þannig lögðu fjölmargir leið sína í björgunarsveitarhúsið Naust á Húsavík þar sem viðamikil dagskrá fór fram. Meira »

Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti

Ögmundur Jónasson
Í gær, 16:46 Ögmundur Jónasson, innanríkis- og mannréttindaráðherra Íslands, segir það vel koma til greina að skoða með hvað hætti Ísland geti beint spjótum sínum að mannréttindabrotum í Aserbaídsjan í kjölfar Evróvisjón keppninnar. Meira »

Ekki hika – hringdu til öryggis

Meðal þess sem var í boði, var að læra hvernig á að beita hjartahnoði.
Í gær, 16:46 Gagn og gaman, voru þau orð sem gestir í Smáralind höfðu um 112-daginn sem þar var haldinn í dag. Markmið dagsins var að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. En ekki síður voru viðbragðsaðilar með umfangsmiklar kynningu. Meira »

Enginn flótti af Y-lista

Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrú Y-lista Kópavogsbúa og Ármann Kr. Ólafsson, sjálfstæðisflokki.
Í gær, 16:04 Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Y-lista í bæjarstjórn Kópavogs, segir það ekki rétt að nokkur fjöldi hafi sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að listinn myndaði meirihluta með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi á fimmtudaginn. Henni er aðeins kunnugt um að einn hafi sagt sig af listanum vegna þessa. Meira »

Möguleikar nýju framboðanna

Í gær, 16:05 Væntanlega mun ýmislegt skýrast á næstunni frekar varðandi stefnur stjórnmálahreyfinganna og hvernig þær ætli sér að skipuleggja starfsemi sína fyrir næstu þingkosningar sem verða í síðasta lagi vorið 2013 eða eftir rúmt ár en gætu skollið á hvenær sem er. Meira »

Iðnaðarmaður ræsti brunaboða

Kleppsspítali
Í gær, 15:57 Lögregla og slökkvilið voru kölluð að Kleppsspítala rétt fyrir hádegið í dag þegar brunaboði og innbrotsboði voru ræstir. Í ljós kom að iðnaðarmaður setti brunaboðann af stað með vinnu sinni og þegar hann reyndi að slökkva á honum ræsti hann óvart innbrotsboðann. Meira »

Búðaþjófur ógnaði starfsmanni

Maðurinn reyndi að stela vörum úr Hagkaup.
Í gær, 15:54 Starfsfólk Hagkaupa í Skeifunni óskaði eftir aðstoð lögreglu höfuðborgarsvæðisins á öðrum tímanum í dag. Þar hafði karlmaður reynt að stela vörum og brást illa við afskiptum öryggisvarðar. Búðaþjófurinn sem ógnaði öryggisverðinum með skærum var handtekinn og bíður skýrslutöku. Meira »

Fangar reyna oft að ná í fíkniefni

Fangi fluttur fyrir dómara.
Í gær, 15:39 Tilvik þess að fangar reyni að nálgast fíkniefni þegar verið er að flytja þá á spítala, fyrir dóm eða til tannlæknis koma reglulega upp. Þetta sagði deildarstjóri á fangelsinu á Litla-Hrauni í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Því þurfi sífellt að endurskoða fangaflutninga. Meira »

Skjálftahrina við Grímsey

Kort af skjálftunum.
Í gær, 14:48 Jarðskjálftahrina varð úti fyrir Grímsey í morgun. Á vefsvæði Veðurstofu Íslands má sjá að hrinan hófst um klukkan níu í morgun og stóð til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 2,3 stig, en einnig mældust skjálftar up á 2 stig og 1,9 og 1,7. Engir skjálftar hafa mælst eftir hádegið. Meira »

Börn grétu vegna útigangsmanna

Klambratún.
Í gær, 15:48 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að Klambratúni í dag þar sem útigangsmenn voru með ofstopa og ógnuðu fólki sem þar gekk um. Tilkynnandi sagði að börn hefðu orðið mjög skelfd og brostið í grát vegna þessa. Þegar lögregla kom á vettvang voru mennirnir hins vegar horfnir á braut. Meira »

Slökkt á meðan Kolaportið er opið

Kolaportið
Í gær, 15:26 Tollstjóri hyggst slökkva á eftirlitsmyndavélum á húsi embættisins við Tryggvagötu á meðan Kolaportið er opið. Þetta kemur fram í umsögn Persónuverndar um fyrirhugaða vöktun hússins. Meira »

Öskureið út í Pál Óskar

Í gær, 14:41 Ulker Gasanova sem fluttist til Íslands frá Aserbaídsjan árið 2001 með móður sinni, Sevil Gasanova, er ekki sátt við málflutning Páls Óskars vegna undirbúnings Evróvisjónkeppninar sem fer fram í Aserbaídsjan í ár. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HUMARHLAÐBORÐ - Árshátíð - Vorferð -
Humar, humar, ... lamb. Humarhlaðborð - aðeins 35 mín frá Rvk. - tilvalið fyri...
2ja herb. íbúð í Hraunbæ
Stór 2ja herb. íbúð í nýlegu húsi til langtímaleigu. Á 1. hæð endi. Leiga kr. 1...
Flottur Nuddbekkur á aðeins 62.000
Ferðanuddbekkur www.isholf.is/eirikurs/nuddbord.html s. 8626194. Falleg - Sterk ...
Fallegu silfurskeiðarnar eru smíðaðar
í smiðjunni okkar ásamt borðsilfrinu íslenska. Skeiðarnar kosta 17.500,- og við ...
 
Leikskólastjóri
Leikskólakennsla
Leikskólastjóri Seyðisfjarðarkaups...
Sölumaður óskast
Sölu/markaðsstörf
Sölumaður óskast Í boði er spennandi söl...
Aðalfundur
Fundir - mannfagnaðir
Aðalfundur Félags sj...
Uppboð
Uppboð
UPPBOÐ Eftirtaldir munir verða boðnir...