Ísland og ESB gera samkomulag í loftslagsmálum

Aðgerðasinnar í gervi trjáa á loftslagsráðstefnunni í Bella Center í …
Aðgerðasinnar í gervi trjáa á loftslagsráðstefnunni í Bella Center í Kaupmannahöfn í dag. Reuters

Ráðherraráð Evrópusambandsins ákvað á fundi sínum í dag að ganga til samninga við Ísland um fulla þátttöku Íslands í aðgerðum ESB til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eftir 2012, en þá lýkur fyrsta skuldbindingartímabili Kýótó sáttmálans.

Samkvæmt upplýsingum frá umhverfisráðuneytinu óskaði Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, bréflega eftir því í júní, að grundvöllur slíks samkomulags yrði kannaður.

Með samþykkt ákvörðunarinnar er framkvæmdastjórn Evrópusambandsins falið að leggja fram tillögu að samningi við Ísland um sameiginlega framkvæmd á markmiðum nýs loftslagssamnings, sem verði fullgiltur jafnhliða nýjum alþjóðlegum loftslagssamningi. Slíkur samningur á milli Íslands og ESB á að vera í samræmi við ákvæði og markmið orku- og loftslagsáætlunar ESB. 

Á grundvelli EES samningsins mun stór hluti losunar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi falla undir viðskiptakerfi ESB frá og með 1. janúar 2013. Þar er m.a. um að ræða alla losun frá stóriðju, og er reiknað með að rúmlega 40% af allri losun á Íslandi verði úthlutað innan viðskiptakerfis ESB frá þeim tíma.

Umhverfisráðuneytið segir, að þessi losun þyrfti einnig að óbreyttu  að uppfylla skuldbindingar Íslands í væntanlegu nýju alþjóðlegu samkomulagi eftir 2012. Það væri flókið fyrir Ísland og íþyngjandi að þurfa að taka á sig tvíþættar skuldbindingar, í gegnum alþjóðlegt samkomulag annars vegar og EES-samninginn hins vegar. Með sameiginlegum skuldbindingum Íslands og ESB gagnvart nýju alþjóðasamkomulagi eftir 2012 sé komið í veg fyrir slíkt og tryggt að sömu reglur munu gilda fyrir losun gróðurhúsalofttegunda frá stóriðju á Íslandi og í öðrum ríkjum á evrópska efnahagssvæðinu. Með þessu fyrirkomulagi verði ekki þörf á sérákvæðum varðandi stóriðju eða aðra geira á Íslandi eftir 2012.

Svandís fékk á ríkisstjórnarfundi á föstudag heimild til að styðja samningsmarkmið ESB um allt að 30% niðurskurð á losun gróðurhúsalofttegunda á Kaupmannahafnarráðstefnunni að því gefnu að samkomulag næðist um sameiginlegar skuldbindingar Íslands og ESB. Segir umhverfisráðuneytið, að sú staða geri Íslendingum fært að setja fram metnaðarfylltri markmið um losun en stjórnvöld hafi sett fram hingað til.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert