„Ástandið þaggað niður“
eftir Björn Jóhann Björnsson
„Ég upplifi þetta eins og verið sé að þagga ástandið niður,“ segir Birkir Högnason, formaður ungliðadeildar Sjúkraliðafélags Íslands, sem kallaður var nýverið til fundar með Álfheiði Ingadóttur heilbrigðisráðherra eftir að stjórn deildarinnar sendi frá sér harðorða ályktun um aukið álag á sjúkraliða á Landspítalanum, LSH.
Í ályktuninni var þeim orðum heilbrigðisráðherra á opinni ráðstefnu mótmælt að álag á starfsfólk Landspítalans hefði ekki aukist.
Á fundinum með ráðherra var Birki tilkynnt að óskað hefði verið eftir áliti landlæknis á öryggismálum á LSH og í byrjun þessarar viku óskaði landlæknir eftir umsögn frá stjórn ungliðadeildarinnar. Þarf að skila þeirri umsögn fyrir morgundaginn, sama dag og landlæknir hyggst skila ráðherra áliti sínu, að sögn Birkis.
Hann segir sjúkraliða hafa miklar áhyggjur af því að öryggi þeirra í starfi sé ógnað. Búið sé að fækka sjúkraliðum á mörgum deildum spítalans og ekki sé mannskapur kallaður út í forföllum sjúkraliða nema í algjörum undantekningartilfellum. Við þessar aðstæður aukist hætta á mistökum í starfi og um leið sé öryggi sjúklinga ógnað líka. Á þetta var einmitt minnst í umræddri ályktun og segir Birkir að heilbrigðisráðherra hafi lýst óánægju sinni með það. Sömuleiðis hafi ráðherra lýst óánægju með ummæli formanna Sjúkraliðafélagsins og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í svipaða veru, þ.e. að álag á starfsfólk spítalans hefði aukist.
Birkir hefur síðustu daga heimsótt flestar deildir spítalans. „Ástandið er misjafnt eftir deildum en almennt er það mjög slæmt,“ segir Birkir og nefnir sem dæmi tvær legudeildir í Fossvogi. Þar sé farið að bera á forföllum sjúkraliða vegna álagstengdra veikinda og svipaða sögu megi segja um Grensásdeild. Þar sé gríðarleg undirmönnun, ekki bara hjá sjúkraliðum heldur einnig hjúkrunarfræðingum.
Innlent »
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 21. desember 2009, Innlent Segir könnun úrelta
- Mánudagur, 21. desember 2009, Innlent Álag á starfsmenn Landspítala kannað
- Föstudagur, 18. desember 2009, Innlent Segir álag á starfsmenn LSH ekki hafa aukist
- Föstudagur, 14. ágúst 2009, Innlent Segir gengið á rétt sjúkraliða
- Föstudagur, 15. janúar 2010, Innlent Segja álag hafi ekki aukist á Landspítala
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































