Heimsins hæsti skattur
eftir Hlyn Orra Stefánsson
Hvergi í heiminum verður hærri virðisaukaskattur en hér á landi verði tillögur sem meirihlutinn í efnahags- og skattanefnd Alþingis lagði fram í gærkvöldi að veruleika.
Tillögurnar fela í sér að fallið verði frá fyrri hugmyndum ríkisstjórnarinnar um þriggja þrepa virðisaukaskatt. Vörur sem samkvæmt nýframlögðu frumvarpi áttu að bera 14% virðisaukaskatt, svo sem veitingastarfsemi og sykraðar vörur, munu áfram bera 7% vask.
Hins vegar hækkar hæsta skattþrepið í 25,5%, en ekki 25% eins og frumvarpið gerði ráð fyrir. Hvergi í heiminum er hærri virðisaukaskattur en 25%, en í Danmörku, Ungverjalandi, Svíþjóð, Noregi og Brasilíu bera ýmsar vörur svo háan vask.
„Það hefur komið fram mikil gagnrýni á aukið flækjustig með nýju skattþrepi,“ segir Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skattanefndar. Hann útilokar þó ekki að ráðist verði í fjölgun skattþrepa síðar meir.
„Á milli umræðna hafa komið fram upplýsingar um að virðisaukaskatturinn skili heldur hærri tekjum en gert var ráð fyrir í frumvarpinu,“ segir Helgi. Samkvæmt útreikningum sérfræðinga hjá fjármálaráðuneytinu gefi þessi nýja leið ríkissjóði sömu tekjur og sú leið sem lögð var til í frumvarpinu.
Pétur H. Blöndal, sem situr í efnahags- og skattanefnd fyrir Sjálfstæðisflokk, segist gáttaður á breytingartillögum meirihlutans. Hann segir að mikil hætta sé á því að skatthlutfallið sé nú þegar orðið það hátt að aukið skatthlutfall þýði að ríkið fái minni tekjur en fengjust með lægra skatthlutfalli.
„Það eru ýmsar ástæður sem geta orðið til þess að skattstofninn minnkar. Það gerist t.d. með því að ákveðinn rekstur leggst af, annar rekstur minnkar, og skattsvik aukast,“ segir Pétur.
Þá gerir hann alvarlegar athugasemdir við meðferð málsins. Nefndin hafi ekki fengið nema örfáar mínútur til að ræða breytingartillögurnar og þeim fylgdu hvorki umsagnir sérfræðinga né álit frá hagsmunaaðilum.
- Leggja til að hæsta þrep hækki í 25,5% · Hvergi í heiminum er virðisaukaskattur hærri ·Aukið flækjustig gagnrýnt, segir Helgi Hjörvar ·Pétur H. Blöndal gáttaður á breytingunum
Bloggað um fréttina
-
Magnús Þór Jónsson Skattar -
Jakob Falur Kristinsson Hæsti skattur í heimi -
Óðinn Þórisson Skattahækkanir ríkisstjórnarflokkana -
Haraldur Haraldsson Heimsins hæsti skattur/Steingrímur skattmann tekur völdin !!!!!!! -
Gunnar Gunnarsson Skjaldborg um heimilin ... helferðarstjórn -
Brjánn Guðjónsson Heimsmet í skattablæti
Innlent »
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 13. júlí 2009, Innlent Efnahagsleg óvissa verri en skuldir
- Miðvikudagur, 2. júní 2010, Innlent Leggur til hærri skatta á mat og auðlindagjald
- Miðvikudagur, 12. ágúst 2009, Innlent Kerfisbreyting á 15 mínútum
- Þriðjudagur, 15. september 2009, Innlent Ræða minnkað vægi verðtryggingar
- Laugardagur, 5. júní 2010, Innlent Engu nær eftir fund með Má
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“


































