Ríkisstjórnin standi við gerða samninga

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ og Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ. stækka

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ og Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ. mbl.is/Heiddi

Miðstjórn Alþýðusamband Íslands krefst þess að ríkisstjórnin standi við gerða samninga um hækkun persónuafsláttar. ASÍ sakar ríkisstjórnina að haga seglum eftir vindi í skattamálum.

Ríkisstjórnin hefur með stuðningi þingflokka sinna ákveðið að afnema verðtryggingu persónuafsláttar og fella niður sérstaka 3.000 kr. hækkun persónuafsláttar þann 1. janúar 2011. „Hvoru tveggja er hluti af samningum ASÍ við fyrri ríkisstjórnir, en sérstaka hækkun persónuafsláttarins er meira segja hluti af núgildandi kjarasamningum sem renna út í lok nóvember á næsta ári. Miðstjórn ASÍ hefur mótmælt þessu harðlega og krafist þess að ríkisstjórnin standi við gerða kjarasamninga,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ á heimasíðu ASÍ.

Efnahags- og skattanefndar Alþingis hefur lokið umfjöllun sinni fyrir 2. umræðu þessa frumvarps og hefur meirihlutinn ekki tekið mark á gagnrýni ASÍ. „Er það miður, því eitt er að standa ekki við gerða kjarasamninga en alvarlegra er að ASÍ háði harða baráttu fyrir því að taka aftur upp verðtryggingu persónuafsláttar í fjölda ára eftir að hún var afnumin árið 1989. Vinstri hreyfingin grænt framboð og Samfylkingin hafa ítrekað tekið undir þessa kröfu okkar. Í tengslum við endurskoðun kjarasamninga í júní 2006 tókst ASÍ að breyta skattastefnu þáverandi ríkisstjórnar með því að hún félli frá lækkun skatthlutfallsins og hækkaði þess í stað persónuafsláttinn sérstaklega og verðtryggði hann síðan varanlega. Í kjarasamningum ASÍ í febrúar 2008 var aftur samið við ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar um sérstaka 7.000 króna hækkun. Þessir samningar hafa tryggt, að persónuafsláttur hefur hækkað um ríflega 15.000 krónur á mánuði. Þess má geta að öll þessi lagafrumvörp voru afgreidd með atkvæðum allra flokka.“

Í umsögn meirihluta nefndarinnar – sem væntanlega rammar inn stefnu þessarar ríkisstjórnar í þessu máli – kemur fram að ,,Töluverðar athugasemdir voru gerðar við afnám vísitölubindingar persónuafsláttar við neysluverð og á það bent að kaupmáttur almenns launafólks hefði lækkað í kjölfar verðbólgu. Enn fremur var því haldið fram að hækkun tekna þeirra hefði að óbreyttum lögum orðið meiri enda væri í frumvarpinu fallið frá hækkun persónuafsláttarins árin 2010 og 2011 samkvæmt ákvæðum til bráðabirgða í tekjuskattslögum. Á móti var bent á að hækkun persónuafsláttar kæmi öllum launamönnum jafnt til góða, óháð efnahag, en ekki aðeins þeim tekjulægstu og að þrepaskiptur tekjuskattur væri betra tæki til tekjudreifingar. Meiri hlutinn fellst á þessi sjónarmið og leggur jafnframt til að skatthlutfall þrepa verði tengt við launavísitölu en þó einungis til hækkunar.‘‘

„Þetta er stórmerkilegt,“ segir forseti ASÍ. „Nú er það svo að ASÍ er sammála stjórnarflokkunum um að taka upp þrepaskipt skattkerfi – ASÍ setti þá kröfu fyrst fram árið 1996. Það er hins vegar mikill og alvarlegur misskilningur þingmanna meirihlutans, að stilla þrepaskattinum og verðtryggingu persónuafsláttar upp sem valkosti sem útiloki hvorn annan. Sá valkostur sem við stóðum frammi var að til að ná neðra skattþrepinu stóð til að fresta verðtryggingunni um ein áramót – sem þýðir minni hækkun persónuafsláttar núna gegn lægra skatthlutfalli – en ekki um hver áramót hér eftir.

Afar mikilvægt er að eftir að lægra þrepið hefur verið tekið upp fylgi persónuafsláttur verðlagi því að öðrum kosti mun skattbyrði lágtekjufólks halda áfram að hækka! Það á lítt skylt við áform um að verja þá tekjulægstu að láta persónuafslátt (og þar með skattleysismörkin) vera óbreyttan að nafnverði um ómunatíð en tengja síðan milli- og efri tekjumörkin (200 og 450 þús.kr.) við launavísitölu. Þetta er að mínu mati gróf mismunun á milli tekjuhópa sem mun leiða til þess að skattbyrði lágtekjufólks fari sífellt fara hækkandi (eins og reynslan var milli 1990-2006!), á meðan skattbyrði milli- og hátekjuhópa er varin vegna tengingar markanna við launavísitölu. Það sem átti að vera aðgerð til að skapa meiri sátt milli tekjuhópa er í rauninni rofinn með þessu.

Ég skora á þingmenn meirihlutans að koma í veg fyrir þetta, almennt launafólk treysti ykkur til að standa vörð um þá tekjulægstu og bregðist þið því trausti mun það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir trúverðugleika ykkar til langs tíma. Sérstaklega þegar það er haft í huga að það var í tíð vinstri stjórnar sem verðtrygging persónuafsláttar var afnumin árið 1989.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Umferð á Vesturlandsvegi

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »
Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Kia Sorento 2007 diesel 4X4 ekinn 77þús
Sjálfskiptur,hátt og lágt drif,1 eigandi,ekkert ákvílandi,dr.beisli, dr.geta 35...
Hjólhýsi TEK 585TKM árgerð 2004
Verð 2.500.000 Hjólhýsið er á loftpúðum, þannig að það er mun léttara og mýkra ...
15,2 fm bjálkahús - Verð kr. 725.000
Húsið er úr 44mm bjálkum. Húsið er ósamsett og til afhendingar strax. Áætlaður...
BÍTLARNIR Limited edition,cd collection
Er með til sölu kassa með 16 diskum. Bók og plaggat. Allt vel með farið. THE BE...
 
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...