Eyfirðingar fordæma afnám sjómannaafsláttar

Fundarmenn Aðalfundi Sjómannafélags Eyjafjarðar í kvöld.
Fundarmenn Aðalfundi Sjómannafélags Eyjafjarðar í kvöld. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson

Félagsfundur var í dag haldinn í Sjómannafélagi Eyjafjarðar. Fundarmenn lýstu þar megnustu óánægju með þau vinnubrögð stjórnvalda að „ráðast sérstaklega að kjörum sjómanna með því að afnema sjómannaafsláttinn eins og gert var með lögum nú rétt fyrir jólin." Sjómannaafslátturinn sé hluti af kjörum sjómanna og hafi verið það í rúma öld.

Sjómannafélag Eyjafjarðar segir ljóst að með þessari lagasetningu þurfi sjómenn bæði að taka á sig skattahækkanir eins og aðrir launamenn og að sæta kjaraskerðingu vegna skerðingar og síðan afnáms sjómannaafsláttarins. Sjómannafélag Eyjafjarðar fordæmir þessi vinnubrögð og mótmælir því alfarið að ráðist sé að sjómannaafslættinum með þessum hætti.

Í greinargerð með yfirlýsingu fundarins segir m.a. að afnám sjómannaafsláttarins sé gerður í skjóli þess að hann valdi mismunun gagnvart öðrum. Ekki sé hinsvegar hróflað við ríkistryggðum lífeyrissjóði opinberra starfsmanna né skattfrjálsum dagpeningum og ökutækjastyrkjum.

Sjómenn borga sjálfir bæði hlífðarfatnað og fæði

„Í athugasemdum sem fylgdu frumvarpinu er því m.a. haldið fram að útgerðin leggi sjómönnum til hlífðarfatnað, sem ekki hafi verið þegar sjómannaafslátturinn var tekinn upp. Þetta er rangt," segir í greinargerð S.E.  „Sjómenn þurfa sjálfir að kaupa sinn hlífðarfatnað. Á móti þeim kostnaði greiðir útgerðin hlífðarfatapeninga, en þær greiðslur eru í skattkerfinu meðhöndlaðar sem laun og skattlagðar sem slíkar. Sama á við um fæði sjómanna. Sjómenn greiða fæði sitt sjálfir. Fæðispeningar sem útgerðin greiðir sjómönnum flokkast sem laun og eru skattlagðir sem slíkir. Dagpeningar sem greiddir eru til annarra stétta vegna ferðalaga á vegum vinnuveitanda eru ekki skattlagðir. Ef gæta ætti jafnræðis ættu sjómenn að fá kr. 8.300 á dag frádregnar frá tekjum vegna fæðiskostnaðar áður en skattur er reiknaður."

 Jafnframt væri réttlátt að mati S.E. að sjómenn fengju frádrátt frá tekjum vegna kostnaðar við hlífðarföt sem nauðsynleg séu vegna starfsins. Full rök séu því  fyrir sérstökum skattaafslætti sjómanna.  „Í athugasemdum með  frumvarpinu var einnig vitnað í tekjuþróun hjá sjómönnum í samanburði við tekjuþróun hjá öðrum launamönnum. Viðmiðið er árið 2006. Ekki er minnst á það einu orði að fyrir árið 2006 hækkuðu laun annarra launamanna meira en tekjur sjómanna m.a. vegna sterkrar krónu. Þannig er í athugasemdunum vísvitandi verið að villa um fyrir almenningi til að réttlæta að sérstaklega sé ráðist að kjörum sjómanna." 

Nánar má lesa um fundinn hér

Árni Guðmundsson Konráð Alfreðsson og Tryggvi Tryggvasson
Árni Guðmundsson Konráð Alfreðsson og Tryggvi Tryggvasson Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert