Fjórir stjórnarþingmenn skrifuðu undir
Aðstandendur InDefence segja að a.m.k. fjórir þingmenn stjórnarflokkanna hafi skráð nafn sitt á undirskriftalista InDefence. Þar er skorað á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að synja nýjum Icesave lögum staðfestingar. Leitað var staðfestingar á undirskriftum viðkomandi alþingismanna.
Þetta kom fram í samtali blaðamanns mbl.is við nokkra aðstandendur InDefence undirskriftasöfnunarinnar á Bessastöðum í dag. Þeir segja að af þessu megi draga þá ályktun að meirihluti sé í raun á Alþingi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.
Undirskriftasöfnuninni verður haldið áfram þar til forsetinn hefur tekið ákvörðun um hvort hann staðfestir lögin eða ekki. InDefence hópurinn mun skila forsetanum viðbótarheftum með undirskriftum ef þörf verður á.
Átta forsvarsmenn InDefence undirskriftasöfnunarinnar afhentu Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, undirskriftalistana í morgun. Á listunum voru undirskriftir 56.089 Íslendinga sem skrifuðu undir áskorun þess efnis að hann synji nýjum Icesave lögum staðfestingar.
Þeir Jóhannes Þ. Skúlason, Eiríkur S. Svavarsson, Magnús Árni Skúlason, Davíð Blöndal, Ólafur Elíasson, Sigurður Hannesson, Ragnar Ólafsson og Agnar Helgason gengu fyrir forsetann og afhentu hver um sig hefti með undirskriftum. Forsetinn tók við heftunum og bauð hópnum síðan til viðræðna í borðstofu Bessastaða.
InDefence mennirnir sögðu að fólk geti farið inn á vefsíðuna og gengið úr skugga um hvort nöfn þess hafa verið skráð þar. Ef einhver telur sig hafa verið skráðan á listann án síns samþykkis getur hann fengið nafn sitt fjarlægt.
Nöfn nokkurra þjóðþekktra manna voru ítrekað tekin út af listanum enda talið að þeir hafi ekki skráð sig sjálfir svo oft. InDefence-menn nefndu t.d. Davíð Oddson ritstjóra Morgunblaðsins í því sambandi. Einnig voru allar Jóhönnur Sigurðardætur kannaðar sérstaklega. Þær sem höfðu aðra kennitölu en forsætisráðherrann fengu að vera á listanum.
Undirskriftasöfnunin hófst að kvöldi 25. nóvember s.l. Undirskriftirnar sem afhentar voru í morgun voru samkeyrðar við þjóðskrá og voru rangar skráningar fjarlægðar. Um 93% þeirra sem skrifuðu undir eru 18 ára og eldri. Því hafa 23,3% atkvæðisbærra Íslendinga undirritað áskorunina. Nöfn þeirra sem ekki hafa náð kosningaaldri, en skrifuðu sig á listann, voru sett í sérstaka möppu. Þau nöfn eru til viðbótar þeim 23,3% sem eru á kosningaaldri.
Bloggað um fréttina
-
Axel Jóhann Axelsson Hvað veldur slíkri tvöfeldni? -
Stefán Friðrik Stefánsson Ásmundur, Lilja og Ögmundur skora á forsetann -
Ólafur Elíasson Leiðrétting frá InDefence -
-
Andri Geir Arinbjarnarson "Consitutional crisis" -
Jón Baldur L'Orange ,,Meta þurfi aðstæður og afleiðingar þess að fela þjóðinni vald" -
-
Kristinn Pétursson Fagleg staða Icesave málsins hjá forseta Íslands. -
Sigurður Sigurðsson Forsetinn kominn út í horn !! -
-
Hulda Elma Guðmundsdóttir Karlar, ó karlar -
Sigurbjörn Einarsson Lýðræðið Ísland?? -
Bergþóra Jónsdóttir Léttir -
Ásdís Sigurðardóttir Ef Ólafur samþykkir lögin þá er hann að............. -
-
Ómar Ragnarsson Línurnar liggja ekki alveg saman. -
Baldur Hermannsson Er þetta hin nýja ríkisstjórn Íslands? -
Magnús Helgi Björgvinsson Heyrðu þetta er ekki bjóðandi!
Innlent »
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 2. janúar 2010, Innlent Segir stjórnarþingmennina vera þrjá
- Miðvikudagur, 9. desember 2009, Innlent Fleiri áskoranir en árið 2004
- Mánudagur, 7. desember 2009, Innlent Tæplega 30 þúsund áskoranir
- Miðvikudagur, 9. desember 2009, Innlent 32.000 skora á forsetann
- Miðvikudagur, 30. desember 2009, Innlent Yfir 36 þúsund skora á forseta Íslands
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“


































