Times: Áfall fyrir breska ríkið
Ítarlega er fjallað um ákvörðun forseta Íslands um að skrifa ekki undir lög um endurgreiðslu á þeim 2,3 milljörðum punda sem breskir skattgreiðendur hafi lánað á fréttavef Times í dag. Þar kemur fram að þetta sé áfall fyrir erfiðan fjárhag breska ríkisins en breska ríkið hafi greitt Bretum sem hafi átt innistæður á reikningum Icesave út trygginguna árið 2008.
Flestir þeirra sem hafa skrifað ummæli við fréttina eru jákvæðir í garð Íslendinga og segja ekki rétt að Íslendingar greiði. Það hafi verið háir vextir í boði og mikil áhætta samfara því. Það sé því innistæðueigenda að bera ábyrgðina sjálfir.
Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, greiddi bresku innistæðueigendunum til baka þar sem hann hafði lofað því að breskir sparifjáreigendur myndu ekki tapa neinu á gjaldþroti Landsbankans, samkvæmt frétt Times. Hins vegar hafi íslenski tryggingasjóðurinn ekki átt næga fjármuni til þess.
Í annarri frétt á vef Times segir að upphaf vandans megi rekja allt aftur til byrjun tíunda áratugar síðustu aldar þegar Íslendingar tóku upp heimskautaútgáfu af Thatcherisma, með einkavæðingu ríkisbankanna og minni hömlum á þá. Fljótlega eftir einkavæðingu bankanna komust þeir í hendur fárra útrásarvíkinga. Á tímum þar sem meira eftirlit var hefðu þeir verið skikkaðir til þess að halda sig á litlum heimamarkaði. Hins vegar einkenndi mikill vöxtur alþjóðlega fjármálamarkaði og milljarðar flæddu.
Þegar sérfræðingarnir fóru að óttast fundu bankarnir nýja leið til þess að ná sér í lausafé. Kaupþing með Edge reikningum sínum og Landsbankinn með Icesave. Breska regluverkið er flókið og gerðu breskar eftirlitsstofnanir ekkert til þess að stöðva íslensku bankanna enda voru íslenskar ríkisábyrgðir til staðar.
Bloggað um fréttina
-
Rafn Gíslason Fróðlegt. -
-
Ómar Geirsson Eigum við ekki að senda Ruv-arana á Times. -
Ægir Óskar Hallgrímsson Sammála! -
Sigurður Haraldsson Einmitt.
Innlent »
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 19. febrúar 2010, Innlent Deildu um ábyrgð á Icesave
- Fimmtudagur, 18. febrúar 2010, Innlent Bretar fallast á eftirgjöf
- Laugardagur, 27. febrúar 2010, Innlent Times: Hætta á einangrun Íslands
- Föstudagur, 1. janúar 2010, Innlent Fylgst með ákvörðun forsetans
- Föstudagur, 19. febrúar 2010, Innlent Vilja finna uppbyggilega lausn
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































