Joly: Átti ekki að takast á við hrun heils bankakerfis

Eva Joly stækka

Eva Joly

Eva Joly, ráðgjafi embættis sérstaks saksóknara,  segist hafa fengið það staðfest hjá höfundum Evrópureglugerðarinnar um innstæðutryggingar, sem liggur til grundvallar Icesave-deilunni, að reglugerðinni hafi aldrei verið ætlað að takast á við hrun bankakerfis heillar þjóðar. Þetta kemur fram í viðtali RÚV við Joly.

Joly segir að verið sé að fjalla um samkomulag sem eigi að gilda til 2024 svo að tíminn til að semja sé nægur. Það sé settur alltof mikill þrýstingur á íslensk stjórnvöld. Hún telur að menn verði að fara á byrjunarreit með málið.

Nauðsynlegt sé að minnast þess að meingölluð Evrópureglugerð frá 1994 um tryggingasjóð innstæðueigenda hafi valdið þessum vanda.

Reglurnar sjálfar kveði ekki á um ríkisábyrgð. Hún segist einnig hafa rætt við þá menn sem sömdu reglugerðina á sínum tíma, til þess að öðlast skilning á henni.

Þeir hafi tekið það skýrt fram að reglugerðinni hafi ekki verið ætlað að taka gildi við hrun meðal þjóða eða hrun heilla bankakerfa. Íslendingar hafi því öflug rök fyrir því að ábyrgðin sé ekki eingöngu Íslands heldur Evrópu allrar. Staðan sé því einstök og kalli á nýjar lausnir.

Hér er hægt að hlusta á viðtalið í heild á vef RÚV

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Óveður í Oddsskarði

Farþegarnir fluttir á Eskifjörð

21:11 Búið er að aðstoða og flytja burt alla farþega rútunnar sem valt í Oddsskarði um áttaleytið í kvöld. Í rútunni voru átta starfsmenn álversins á Reyðarfirði á leið heim til sín. Þeir voru fluttir á heilsugæsluna á Eskifirði til aðhlynningar en enginn var alvarlega slasaður. Meira »
Oddsskarð.

Átta manns í rútu sem valt

20:40 Átta manns voru um borð í lítilli rútu sem fór út af veginum í Oddsskarði rétt fyrir klukkan 20 í kvöld. Veginum er nú lokað. Ekki er vitað til að neinn hafi slasast alvarlega, en björgunarsveitir eru að flytja fólkið úr skarðinu. Meira »

Flutningabíll valt á Fjarðarheiði

Á Fjarðarheiði.
20:37 Stór flutningabíll með eftirvagn, s.k. trailer, valt á Fjarðarheiði ofan Seyðisfjarðar í vonskuveðri um sjöleytið í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum voru tveir menn í bílnum og sat annar þeirra fastur. Meira »

Oddsskarð lokað vegna slyss

20:22 Vegurinn um Oddsskarð er lokaður vegna umferðaróhapps, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.  Meira »

Styttist í hrognafrystingu

Loðnuhrognavinnsla hjá HB Granda Akranesi
20:02 Góður kraftur hefur verið í loðnuveiðum síðustu tvær vikur og nú styttist í að hrognafyllingin í loðnunni og þroski hrognanna gefi tilefni til að hægt verði að hefja hrognatöku og –frystingu. Meira »

Lést í bílslysi í Tansaníu

Gunnar Örn Gunnarsson
20:29 Íslenski pilturinn sem lést í bílslysi í Tansaníu síðastliðinn laugardag hét Gunnar Örn Gunnarsson. Hann bjó í Helsingborg í Svíþjóð ásamt fjölskyldu sinni. Meira »

Perlan fái hlutverk við hæfi myndskeið

Perlan1
20:15 Hugmyndir um að Perlan hýsi Náttúruminjasafn Íslands, sem lög gera ráð fyrir að rísi, hafa hlotið mikinn byr að undanförnu. Árni Hjartarson, formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags, segir að samskipti við stjórnarformann OR hafi verið afar jákvæð og að margir hafi tekið undir hugmyndina. Meira »

Skafrenningur á Austurlandi

19:03 Hríð á flestum fjallvegum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Gera má ráð fyrir þéttri ofankomu og skafrenningi austanlands fram á nótt s.s. á Oddsskarði og Fjarðarheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Meira »

Fundaði með fulltrúum sveitarfélaga

Jóhanna Sigurðardóttir
19:01 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með fulltrúum forsvarsmanna landhlutasamtaka sveitarfélaga. Ræddi hún á fundinum um hvaða kostir eru í stöðunni varðandi verkefni á landsbyggðinni. Meira »

Vilja lækka olíugjald

18:32 Þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja í dag fram frumvarp til laga þar sem lagt er til að olíugjald verði lækkað umtalsvert.  Meira »

Leitar hjálpar vegna Aratúns-dóms

Aratúnið Málið spratt upp eftir skrif um Aratúnsfjölskylduna á bloggsíðu.
18:33 „Þetta er klárlega prófmál og mun hafa áhrif á önnur mál í framtíðinni þar sem einhver er ósáttur við ummæli á netinu," segir Andrés Helgi Valgarðsson, sem tapaði í vetur meiðyrðamáli vegna s.k. Aratúnsmáls. Andrés hyggst áfrýja til Hæstaréttar en ræður illa við málskostnaðinn og leitar eftir aðstoð Meira »

Unglingspilts enn leitað

Guðmundur Árnason.
18:19 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar lýsingu eftir Guðmundi Árnasyni, sem hvarf er hann var á ferð í Kópavogi þann 17. febrúar sl. Meira »

Ósáttur við að vera þjófkenndur

Frá Landmannalaugum - mynd úr safni
18:17 Guðmundur Gústafsson, einn þeirra sem voru í hópi jeppamanna í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum um helgina, er afar ósáttur við að hópurinn sé þjófkenndur en gps-staðsetningartæki var stolið í skálunum um helgina. Meira »

Verslunarstjóri dæmdur fyrir umboðssvik

BYKO.
16:37 Hæstiréttur dæmdi í dag fyrrverandi verslunarstjóra BYKO á Selfossi í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að umboðssvik. Maðurinn var talinn hafa komið því til leiðar að fyrirtækið 5x fékk afhentar vörur frá versluninni árið 2007 án þess að staðgreiða þær. Meira »

Leiga í félagslegu húsnæði hækkaði um 28%

16:32 Verð á húsaleigu fyrir félagslegar íbúðir hækkaði um 28,6% á tímabilinu 2007 til 2011. 14.055 fengu húsaleigubætur á síðasta ári og 3.756 fengu sérstakar húsaleigubætur. Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar alþingismanns. Meira »

Fær frest til þriðjudags

Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
17:44 Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur samþykkt að veita Gunnari Andersen, forstjóra FME, lengri frest til þess að andmæla fyrirhugaðri uppsögn. Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, segir að Gunnar fái frest til klukkan 16 næstkomandi þriðjudags. Meira »

„Enginn greiði gerður með þessu klúðri“

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
16:37 „Það er öllum að verða augljóst að málsmeðferð þessa máls er klúður,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag um afgreiðslu Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Lýsa eftir ræningja

Spilakassar.
16:30 Lögreglan á Akureyri óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á manni sem framdi rán í Fjölumboðinu við Geislagötu á Akureyri í hádeginu í dag. Um er að ræða spilastað Gullnámunnar. Maðurinn komst af vettvangi með eitthvað af fjármunum úr sjóðsvél staðarins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Lincoln árg. 1957
Til sölu Lincoln Capri Landau árg 1957. Bíllinn er ekinn 88þ mílur. Tveir eigend...
COSTA BRAVA PLAYA DE ARO
Costa Brava - Playa de Aro Gullna ströndin, fyrir fjölskylduna i sumarleyfið...
2007 Polaris Sportsman X2 500
Vel útbúið götuskráð fjórhjól með álfelgum, spili, hita í handföngum, vindhlíf o...
Til sölu HondaShadow 750 Spirit
Flott Honda til sölu.Ekin aðeins 8000 km Fæst á fínu verði. Á sama stað tveir ...
 
Aðalfundur kjördæmisráðs suðvesturkjördæmis sjálfstæðisflokksins

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksinsí Suður...
Framleiðslustarfsmenn - raf- og véliðnaðarmenn og sumarstörf
Iðnaðarmenn
Atvinnutækifæri á Austurlandi Matthía...
Skólameistarar: fjölbrautaskóli suðurnesja, fjölbr. suðurlands
Sérfræðistörf
Laus embætti hjá mennta- og menni...
Sýslumaðurinn í kópavogi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....