Þýskur sáttasemjari í Icesave-deilunni?

LIlja Mósesdóttir
LIlja Mósesdóttir Kristinn Ingvarsson

Í samtali við þýska fréttavefinn Der Westen lýsir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, yfir áhuga á að leita til Joschka Fischer, fyrrverandi utanríkisráðherra Þýskalands, til að miðla málum í deilu Íslendinga við Breta og Hollendinga vegna Icesave málsins.

„Við erum með þessu að senda skilaboð út til Evrópuþjóðanna að við þiggjum hjálp og teljum okkur þurfa aðstoð þriðja aðila til að fá fram lausn sem íslenska þjóðin sættir sig við,“ segir Lilja í samtali við mbl.is. Með henni í viðtalinu var Ögmundur Jónasson, einnig þingmaður VG.

Lilja segir mjög við hæfi að fá Þjóðverja til að miðla málum, þar sem þýskir kröfuhafar hafi sýnt Íslendingum mikinn skilning, og verið viljugir til að afskrifa skuldir til þess að tryggja að Íslendingar geti staðið undir skuldbindingum sínum til langs tíma.

Skilning á skuldavanda þróunarlanda

„Hvað Fischer varðar voru Græningjar [flokkur Fischers] þekktir fyrir að hafa mikinn skilning á skuldavanda þróunarlanda, og hafa staðið vörð um náttúruperlur.“Til að standa undir skuldbindingum Icesave-samkomulagsins þarf að virkja íslenskar náttúruperlur, segir Lilja, sem Fischer muni hafa skilning á að sé ekki farsæl lausn.

Ekki hefur verið kannað hvort Fischer sé fáanlegur til verksins. 

„Ég sem borgari vil þjóðaratkvæðagreiðslu, en sem þingmaður VG tel ég að það gæti verið betra að fara samningaleiðina, og nota þá möguleikann á þjóðaratkvæðagreiðslu sem vopn í deilunni,“ segir Lilja.

Meti verðmæti áður en borgað er

Meðal þess sem Ögmundur segir í viðtalinu við Der Westen er að Íslendingar vilji standa við erlendar skuldbindingar sínar, en bætir við: „Icesave átti líka verðmæti á borð við hlutabréf. Áður en við borgum viljum við vita hve mikils virði þau eru.“

Haft er eftir Ögmundi að hann óttist að Norðurlöndin dragi til baka lánafyrirgreiðslu sem Ísland þurfi nauðsynlega á að halda. Hann hvetur ESB til að koma Íslendingum til hjálpar.

Joschka Fischer, fyrrverandi utanríkisráðherra Þýskalands.
Joschka Fischer, fyrrverandi utanríkisráðherra Þýskalands. AP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert