Leita þarf utanaðkomandi aðstoðar

Skúli Thoroddsen.
Skúli Thoroddsen.

Skúli Magnússon, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands, telur að ef þess er enn kostur að fá utanaðkomandi aðstoð til að semja okkur út úr Icesave-vandanum beri að láta reyna á hann strax þrátt fyrir fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu. 

Skúli skrifar um Icesave-deiluna á vef Starfsgreinasambandsins.  Þar leggur hann áherslu á að mikilvægast sé að efnahagsáætlunin sem ríkisstjórnin stendur að með aðkomu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og lánum Norðurlandanna verði ekki sett í uppnám. Of mikið sé í húfi. Þess vegna verði að klára Icesave sem fyrst.

„Samþykki þjóðin Icesave-lögin í þjóðaratkvæðagreiðslunni verður staðan þekkt eins og hún getur orðið í versta falli. Felli þjóðin nefnd lög og á meðan ekkert annað er í sjónmáli, ríkir sama óvissan áfram og var,“ segir Skúli.

Pistill á vef Starfsgreinasambands Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka