Þrettán bjóða sig fram á Akureyri

Sjálfstæðismenn á Akureyri efna til prófkjörs 13. febrúar.
Sjálfstæðismenn á Akureyri efna til prófkjörs 13. febrúar. mbl.is / Skapti Hallgrímsson

Sigrún Björk Jakobsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri, og Elín Margrét Hallgrímsdóttir bæjarfulltrúi eru í hópi þrettán þátttakenda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri vegna komandi sveitarstjórnakosninga.

Framboðsfrestur vegna prófkjörsins rann út í kvöld.

Frambjóðendur eru:

Anna Guðný Guðmundsdóttir, iðjuþjálfi og háskólanemi,

Björn Ingimarsson hagfræðingur,

Elín Margrét Hallgrímsdóttir, símenntunarstjóri og bæjarfulltrúi,

Huld S. Ringsted verslunarrekandi,

Kolbrún Sigurgeirsdóttir grunnskólakennari,

Kristinn Frímann Árnason bústjóri,

Njáll Trausti Friðbertsson, flugumferðarstjóri og viðskiptafræðingur, 

Ólafur Jónsson héraðsdýralæknir,

Ragnar Sigurðsson, laganemi og formaður Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri,

Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarfulltrúi,

Sigurður Guðmundsson verslunarmaður,

Svavar Hannesson vátryggingaráðgjafi,

Unnsteinn Jónsson verksmiðjustjóri.

Prófkjörið fer fram laugardaginn 13. febrúar næstkomandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert